fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Lesið í tarot Gylfa – Skín skærar hjá stærra liði – „Hann er örlátur á auðæfi sín“

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 1. mars 2020 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur verið skrafað um slæma stöðu knattspyrnukappans Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton og jafnvel velt upp að hann verði seldur í sumar. DV ákvað því að lesa í tarotspil Gylfa og athuga hvað framtíðin ber í skauti sér. Lesendum er bent á að þeir geta sjálfir dregið tarot á vef DV.

Ekkert vonleysi, takk

Fyrsta spilið sem kemur upp er Tunglið. Gylfi hefur það á tilfinningunni að hann ráði ekki við það erfiði sem framundan er og einkennist tilfinningalíf hans af ringulreið, jafnvel einmanaleika og ístöðuleysi. Gylfi ræður hins vegar við hvaða hindrun sem er og þarf að rífa sig upp úr vonleysinu og takast á við framtíðina – ekki láta bölmóð villa sér sýn. Hann þarf að horfa betur í kringum sig og læra að meta það sem hann hefur því framtíðin er afar björt.

Jafnvægi í fjölskyldu

Næst er það 6 mynt. Gylfi hefur þénað vel í atvinnumennsku en er langt frá því að vera nískur. Hann er örlátur á auðæfi sín og deilir eigin velgengni með sínum nánustu. Þegar kemur að fjölskyldunni ríkir mikið jafnvægi í lífi Gylfa og hann er ávallt hreinskilinn í samskiptum sínum. Innan skamms hlotnast honum aukinn sálarfriður og hagur hans vænkast enn frekar.

Kjarkur og ástríða

Loks er það 7 stafir. Gylfi er afar áræðinn og metnaðarfullur. Hann býr yfir kjarki og ástríðu sem gæti nánast flutt fjöll og dást margir að hæfileikum hans til að takast á við erfiðleika. Það virðist rétt sem spekingarnir segja – Gylfi er á leið frá Everton en verður boðaður í viðtal hjá öðru liði sem er stærra. Þar mun hann ná að nýta alla sína kosti til framfara og skína enn skærar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.