Leikkonan Evangeline Lilly, sem er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum Lost og myndunum um Ant-Man, segist vera á móti heimasóttkví vegna kórónuveirufaraldursins og telur að verið sé að gera of mikið mál úr COVID-19.
Evangeline skrifaði færslu á Instagram þar sem hún lýsti því yfir að hún hafi sent börnin sín í leikfimibúðir. „Þau þvoðu sér um hendur áður en þau fóru. Þau eru að leika sér og hlæja,“ skrifar leikkonan, en rúmlega fjórtán þúsund hafa smitast af veirunni í Bandaríkjunum. Þar af hafa rúmlega tvö hundruð látist og óttast að útbreiðslan verði enn meiri næstu daga og vikur.
https://www.instagram.com/p/B9zT034AEBi/
Evangeline fær sannarlega á baukinn í athugasemdakerfinu við færsluna á Instagram og margir efast um ákvörðun hennar og úthúða henni; kalla hana asna og óábyrga.
„Ég bý með föður mínum núna sem er með hvítblæði,“ skrifar leikkonan en aldrað fólk með undirliggjandi sjúkdóm er talið sérstaklega útsett fyrir smiti. „Sumir meta líf sitt meira en frelsi. Sumir meta frelsið meira en lífið. Við tökum öll okkar ákvarðanir.“
Þá kallar leikkonan COVID-19 bara flensu og segir að bandarísk yfirvöld séu að gera of mikið mál úr heimsfaraldrinum.
„Við skulum fylgjast vel með leiðtogum okkar og tryggja að þeir misnoti ekki þennan tíma til að stela meira af frelsinu okkar og næla sér í meiri völd,“ skrifar hún. „Það er alltaf eitthvað fyrir kosningar á hverju ári,“ bætir hún við og ýjar að því að COVID-19 sé notað sem kosningabrella.
Leikkonan er ekki fyrsta fræga manneskjan til að vera gagnrýnd fyrir skoðanir sínar og ummæli um COVID-19. Leik- og söngkonan Vanessa Hugdgens lenti í orrahríð þegar hún sagði í beinni útsendingu á Instagram: „Fólk mun deyja, sem er hræðilegt en einnig óumflýjanlegt?“ Vanessa baðst síðar afsökunar á ummælunum og sagði þau ónærgætin.