fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Segir karlmenn gefa sér pening: „Hann sagðist fá eitthvað úr því, eins og einhvers konar blæti“

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 5. mars 2020 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirsæta fær 1,6 milljón krónur á mánuði fyrir að selja djarfar myndir af sér á netinu.

Apollonia Llewellyn er tvítug og fær rúmlega fjögur þúsund krónur í sinn vasa í hvert skipti sem einhver verður áskrifandi af OnlyFans síðunni hennar.

Áskrifendur fá aðgang að kynþokkafullum og djörfum myndum af henni sem aðrir fá ekki að sjá, heldur „bara aðdáendur“ eins og nafn síðunnar gefur til að kynna.

Apollonia hefur heldur betur haft mikið upp úr krafsinu síðan hún byrjaði að selja djarfar myndir af sér, hún hefur hún farið tólf sinnum í ferðalag og hefur tekist að safna sér fyrir innborgun á íbúð. Hún segir frá þessu í viðtali við The Sun.

Hún fær ekki aðeins greitt fyrir myndir heldur einnig fyrir að hafa samskipti við aðdáendur. Hún fær allt frá 800 krónur til 33 þúsund krónur fyrir að senda djarfar myndir og senda skilaboð.

Apollonia stækkar einnig tekjulindina með því að selja dagatöl með myndum af sér og notuð bikiní og notaða skó.

Þegar Apollonia var yngri var hún lögð í einelti fyrir að vera „ljót og feit.“ Í dag þénar hún rúmlega 8,2 milljón krónur á mánuði. Um 6,6 milljón krónur sem fyrirsæta og áhrifavaldur og um 1,6 milljón krónur fyrir OnlyFans-síðuna sína.

„Ég skoðaði bankareikninginn minn yfir jólin og sá að ég hafði eytt tæplega milljón krónum bara í fjölskylduna mína,“ segir hún.

„Síðan ég byrjaði á OnlyFans hefur mín upplifun verið lífsbreytandi. Ég hef alltaf verið með góðar tekjur en þetta gjörsamlega breytti því,“ segir hún.

„Ég hef heyrt að berbrjósta myndir selja vel, en ég fæ sama pening án þess að þurfa að fara úr að ofan.“

Apollonia er í sambandi og er kærastinn mjög stuðningsríkur.

Stuðningsríkur kærasti

Fær þjórfé frá aðdáendum

„Þegar maður talar við aðdáanda þá senda þeir stundum þjórfé. Ég fæ mikið af því. Í síðustu viku lagði einn 82 þúsund krónur inn á bankareikninginn minn. Annar gaur gaf mér 65 þúsund krónur og sagðist fá eitthvað úr því að gefa mér pening, eins og einhvers konar blæti. Þetta er satt að segja alveg brjálað,“ segir hún.

„OnlyFans er örugg síða og peningurinn fer beint í þinn vasa. Ef einhver er að spá í þessu þá mæli ég klárlega með því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.