Nýlega skoðaði Ellen DeGeneres nokkrar vörur sem eru markaðsettar til kvenna í vinsæla spjallþætti sínum Ellen.
Hún skoðaði meðal annars hægðalosandi lyf. Hún var með tvö lyf, eitt var venjulegt meðan hitt var með bleikum miða og sagt vera fyrir konur. Bæði lyfin voru alveg eins að öllu leyti fyrir utan það að það voru 40 færri töflur í „konu-lyfinu“. Samt sem áður kostuðu lyfin það sama.
Ellen segir að þetta vilja konur ekki
„Enn og aftur erum við að borga meira fyrir minna. Við viljum ekki bleika hamra, við viljum ekki bleik hægðalosandi lyf. Við fá það sama fyrir sama verð,“ segir Ellen og vísar í svokallaða bleika skattinn.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.