„Ég finn það læðast að mér. Hægt og rólega finnur það sér leið og smeygir sér inn í líkama minn. Það tekur sér bólfestu í hausnum á mér. Þetta svarta myrkur sem ég þekki of vel.Ég hristi það af mér og held áfram með daginn. Hvert skref sem ég tek verður þyngra, brosið sem ég ber verður minna. Hjartað hamast í brjóstinu á mér. Ég finn sjálfa mig hverfa þegar almyrkrið gleypir mig. Ég er ekkert.
Heimurinn snýst í kringum mig og ég finn hvernig ég hryn niður í myrkrið, tek alla sem ég elska með mér. Sé andlitin þeirra í móðu þar sem þau hrópa nafnið mitt.
Allt í einu, eins og kveikt hafi verið á peru, vakna ég. Myrkrið er horfið og eftir sit ég, lítið brotið blóm með líf annara í molum í kringum mig. Tek sama brotin þeirra, sem raðast saman eins og mósaík.
Ekki fullkomin, en ekki ófullkomin heldur.”
Það eru allt of margir sem kannast við þessa líðan, sem vita hvernig þessi tómleiki er.
Margir sem upplifa þessa tilfinningu finna líka fyrir ákveðinni sjálfseyðingarhvöt. Oft áttar manneskjan sig ekki á því sjálf og þá er mikilvægt að stíga inn í. Manneskja í sjálfseyðingarham rífur sjálfa sig niður og dregur fólkið í kringum hana niður líka.
Neikvæðni, Hræðsla, Átraskanir, Lélegt sjálfstraust, Vanræksla á líkama og heilsu, Gera lítið úr samböndum við aðra, Sjálfsvorkunn, Neitar hjálp, Rífur sjálfan sig niður.
Þetta eru algeng einkenni sem þarf að hafa í huga ef þig grunar að þú eða einhver sem þú elskar sé með sjálfseyðingarhvöt.
Sýni viðkomandi að hann sé haldinn sjálfseyðingarhvöt eða minnkandi lífslöngun er ótrúlega mikilvægt að hann fái skjóta meðferð frá geðlækni eða sálfræðingi.
Ef alvarleg sjálfsvígshætta er á ferð er nauðsynlegt að bregðast hratt við. Í bráðatilfellum er hægt að leita ráða í hjálparsíma Rauða kross Íslands sem er 1717, Neyðarlínan í síma 112, og einnig er hægt að hafa samband við geðdeild Landspítalans í síma 5431000.
Færslan er skrifuð af Heiðrúnu Grétu og birtist upphaflega á Mæður.com