Ef að þú ert ein/nn af þeim sem elskar gæludýrið þitt algjörlega út fyrir endimörk alheimsins, eins og Bósi Ljósár myndi segja, þá er líklegt að þú eyðir nú þegar miklum tíma og peningum fyrir það.
Það eru ekki allir hrifnir af öllu því dóti og drasli sem fylgir gæludýrum og oft þykir fólki húsgögnin þeirra ekki passa inn á ímynd heimilisins. Þeir einstaklingar gætu glaðst yfir því að Okawa Kagu frá Japan hefur hannað virkilega falleg kattarhúsgögn fyrir heimilið. My modern met greinir frá því að Kagu hafi gert nákvæma eftirmynd af venjulegum húsgögnum og gert þau í réttri stærð fyrir venjulegan heimiliskött.
Þeir sem eru handlagnir geta því dregið fram hanskana og hafist handa: