fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Ingibjörg segir allar konur sem hún hefur hitt hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni

Aníta Estíva Harðardóttir
Þriðjudaginn 4. september 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Allar konur sem ég þekki eða hef talað við einhverntímann á lífsleiðinni hfa orðið fyrir kynferðislegri áreitni á einn eða annann hátt. Áreitnin getur verið mismunandi og ég er guðs lifandi fegin að ég er ekki 14 eða 15 ára í dag. Ég myndi ekki vilja vera ung stelpa að stíga sín fyrstu skref í lífinu og þurfa að upplifa stráka sem oft á tíðum vita lítið annað um kynlíf en það sem þeir sjá í klámi – og flest okkar vita að það er eins langt frá raunveruleikanum og það gerist,“ segir Ingibjörg Eyfjörð í færslu sinni á Öskubuska.is

Gera lítið úr vandanum

Ingibjörg hefur áður tjáð sig um málefni tengd kynferðislegri áreitni og finnst henni mikilvægt að fjalla oftar og meira um það.

„Sumir virðast ekki ná þessu og reyna enn að halda því fram að ekki allir karlmenn séu svona og að ekki allir karlmenn hagi sér svona. Með því gera þeir lítið úr vandanum og okkar upplifun í leiðinni. Það sem karlmenn ættu að byrja á því að gera er að viðurkenna vandann. Auðvitað geta þeir ekki haft áhrif á alla karlmenn í heiminum í einu, en þeir geta haft áhrif á aðra karlmenn í sínu nærumhverfi. Og ef allir gerðu það myndi þetta á endanum ná til allra.“

Mynd sem Ingibjörg vaknaði við einn morguninn

Ingibjörg segir allar konur sem hún þekkir eða hefur talað við á lífsleiðinni hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni á einn eða annan hátt.

„Áreitnin getur verið að kunningar pabba segi mér þegar ég var varla unglingur að ég sé að verða „flott og alvöru vaxin kona og pabbi þurfi að fara að passa mig” meðan þeir halda áfram að segja klámbrandara og horfa í áttina að mér. Hún getur verið það að þegar ég var í 8 bekk klipu strákar í klofið á mér og sögðu mér að ég væri ennþá stinn því að það væri ekki búið að ríða mér ennþá. Hún getur verið það þegar miklu eldri strákur skrifaði í minningarbókina mína þegar ég var í 7 bekk að ég ætti „að hringja í hann þegar ég yrði 18.“ Hún getur verið þegar stelpur eru niðri í bæ á skemmtistöðum og eru snertar, eltar og smánaðar ef þær segja nei. Hún getur verið þegar ég er að bíða í röð eftir klósettinu á 11-unni og einhver strákur labbar upp að mér og króar mig af úti í horni, stendur alveg upp við mig og andar djúpt og þungt meðan hann horfir í augun á mér. Hún getur verið typpamyndir á snapchat, eða óviðeigandi skilaboð um hvað karlmenn myndu gera við mig á instagram.“

Hver einasta kona sem þú þekkir hefur lent í kynferðislegri áreitni

Segir Ingibjörg að áreitnin geti verið á endalaust marga vegu.

„Mér finnst ég þurfa að þylja þetta upp aftur. Og aðeins hærra fyrir fólkið aftast:

Auðvitað eru ekki allir karlmenn fávitar. En það eru nógu margir þannig að ég fæ alltaf sömu ógeðis stress tilfinninguna þegar ég sé skilaboð frá karlmönnum sem ég þekki ekki.
Auðvitað eru ekki allir karlmenn fávitar. En þeir eru nógu margir þannig að þegar ég er ein heima með börnin læsi ég öllu.
Auðvitað eru ekki allir karlmenn fávitar. En það eru nógu margir þannig að þegar ég fer niðrí bæ treysti ég mér ekki til að vera ein lengur.
Auðvitað eru ekki allir karlmenn fávitar. En það eru nógu margir þannig að ég hef alvarlega íhugað að ganga um með eitthvað til að vernda mig.
Auðvitað eru ekki allir karlmenn fávitar. En það eru nógu margir þannig að ég vill frekar gera ráð fyrir því að þeir séu það allir og vera þá aðeins öruggari. Það eru auðvitað ekki allir karlmenn fávitar. En þeir eru nógu margir til að næstum hver einasta kona sem þú þekkir, mamma þín, amma, systir, frænka eða maki hefur lent í kynferðislegri áreitni.

Hvað segir það þér?“

Instagram síðan Fávitar hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga en þar eru birt ósæmileg skilaboð íslenskra karlmanna til kvenna í þeirri von um að vekja athygli og stöðva slíka hegðun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Varar við kínverskri leyniaðgerð

Varar við kínverskri leyniaðgerð
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Stjarnan tjáir sig eftir ótrúlega umfjöllun blaðamanns: Hótar lögsókn og ásakar hann um lygar – ,,Hef aldrei og mun aldrei gera þessa hluti“

Stjarnan tjáir sig eftir ótrúlega umfjöllun blaðamanns: Hótar lögsókn og ásakar hann um lygar – ,,Hef aldrei og mun aldrei gera þessa hluti“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

,,Hann má taka því rólega í tveimur leikjum gegn okkur“

,,Hann má taka því rólega í tveimur leikjum gegn okkur“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Byrjunarlið Tottenham og Arsenal – Mikið undir í stórleiknum

Byrjunarlið Tottenham og Arsenal – Mikið undir í stórleiknum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Telur að rifrildið umtalaða í gær tali sínu máli – ,,Sannfærður um að hann sé á förum“

Telur að rifrildið umtalaða í gær tali sínu máli – ,,Sannfærður um að hann sé á förum“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Messi minnir verulega á sig – Var stórkostlegur í nótt

Messi minnir verulega á sig – Var stórkostlegur í nótt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Skoraði ekki mark og mistókst að bæta met Henry og Kane

Skoraði ekki mark og mistókst að bæta met Henry og Kane

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.