fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024

Charlize Theron þyngdist um 23 kíló fyrir hlutverk: „Ég upplifði þunglyndi í fyrsta skiptið“

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 26. apríl 2018 09:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Charlize Theron bætti á sig um 23 kílóum fyrir nýjasta hlutverk sitt í bíómyndinni Tully. Theron hefur nú viðurkennt að þyngdaraukningin hafði slæm áhrif á skap hennar og andlega heilsu.

Í bíómyndinni leikur Theron þriggja barna móðurina Marlo og í staðin fyrir að klæðast sérstökum fitubúning sem átti að láta Theron líta út fyrir að vera nýbúin að eiga þá ákvað hún sjálf að þyngja sig.

Samkvæmt Popsugar notað Theron sérstaklega kartöfluflögur til þess að þyngja sig og sagði hún í viðtali við Ellen DeGeneres á dögunum að kartöfluflögur hefðu umlukið líf hennar.

„Ég var með poka í bílum mínum, á klósettinu, í eldhúsinu, á sófanum og í hjólhýsinu mínu,“ sagði Theron sem viðurkenndi að hún átti ekki von á þeirri andlegu vanlíðan sem hún upplifði í kjölfarið.

„Það erfiðasta var að ég var ekki undirbúin undir það hversu mikið unninn matvara átti eftir að hafa áhrif á skapið mitt. Ég upplifði þunglyndi í fyrsta skiptið. Það sem oft er sagt að þú ert það sem þú borðar, það er sko satt. Ég borðaði eins og manneskja sem hreyfir sig aldrei og mér leið þannig.“

Theron viðurkennir einnig að hún hafi alltaf verið þreytt og það hafi verið erfitt fyrir hana að ná sér úr þeim gír þar sem það hafi verið meira andleg þreyta heldur en líkamleg.

Fyrir neðan má sjá brot úr myndinni sem Theron þyngdi sig fyrir:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Vill vita hvort hann fari frá City fyrr en seinna

Vill vita hvort hann fari frá City fyrr en seinna
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Lögregla í Bandaríkjunum hafði samband við íslensk lögregluyfirvöld vegna manns sem býr í Kópavogi

Lögregla í Bandaríkjunum hafði samband við íslensk lögregluyfirvöld vegna manns sem býr í Kópavogi
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Skoðar það að fara til Sádí Arabíu í sumar svo að hann og fjölskyldan fái frið frá hjákonunni

Skoðar það að fara til Sádí Arabíu í sumar svo að hann og fjölskyldan fái frið frá hjákonunni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.