fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025

Eton Mess með súkkulaðimarengs

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 2. apríl 2017 09:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eton Mess er þessi einfaldi og frábæri eftirréttur sem allir elska að elska. Hann er einfaldur í undirbúningi þar sem marengsinn er gerður deginum áður þannig að þegar gestirnir mæta þarf í raun bara að þeyta rjóma og setja hann saman. Hér er súkkulaðiútgáfan af þessum snilldarrétti og punkturinn yfir i-ið er dásemdar hindberjamauk.

Eton Mess með súkkulaðimarengs

Súkkulaðimarengs

5 eggjahvítur, við stofuhita
240 g sykur
3 msk hágæða kakó
80 g 70% súkkulaði, gróflega saxað

Hindberjamauk

300 g hindber, fersk
2 msk flórsykur
1 msk vanillusykur

Súkkulaðirjómi

5 dl rjómi
2 msk kakó
1 msk vanillusykur

  1. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru orðnar stífar. Bætið sykri smátt og smátt saman við. Þeytið þar til eggjahvíturnar eru orðnar vel stífar og leka ekki. Bætið kakói og súkkulaði varlega saman við með sleif.
  2. Setjið marengsinn á smjörpappír á ofnplötu. Hitið ofninn 175°c. Setjið marenginn inn og skrúfið niður í 110°c. Bakið í eina klukkustund. Slökkvið niður í ofninum en opnið hann ekki. Geymið marengsinn yfir nótt í ofninum.
  3. Rétt áður en rétturinn er borinn fram hrærið þið rjómann og bætið kakói saman við. Kremjið hindberin með gaffli ásamt flórsykri og vanillusykri.
  4. Látið rjóma í botninn á glasi eða skál, setjið mulinn marengs yfir, síðan hindberjamauk og þá rjóma og endurtakið. Marengsinn á að vera í meirihluta í réttinum.  Berið fram og njótið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Staðfestir að hann muni ekki tala við Trump ef hann treður sér aftur í sviðsljósið í sumar

Staðfestir að hann muni ekki tala við Trump ef hann treður sér aftur í sviðsljósið í sumar
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Verður leiddur fyrir aftökusveit á föstudag: Sagður vera stórskemmdur eftir áfengis- og eiturlyfjanotkun móður hans

Verður leiddur fyrir aftökusveit á föstudag: Sagður vera stórskemmdur eftir áfengis- og eiturlyfjanotkun móður hans
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Vissi að ferilinn væri á enda þegar hann ræddi um Tony Adams við samherja sinn

Vissi að ferilinn væri á enda þegar hann ræddi um Tony Adams við samherja sinn
Eyjan
Fyrir 8 klukkutímum

Dagur B. Eggertsson: Bændur gætu orðið fremstir í stuðningsliði Evrópusambandsaðildar

Dagur B. Eggertsson: Bændur gætu orðið fremstir í stuðningsliði Evrópusambandsaðildar
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann flutti erfiðustu opnunarræðu ferils síns

Átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann flutti erfiðustu opnunarræðu ferils síns
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gæti þurft að hætta eftir að hafa misst meðvitund og hjartavandamál var greint

Gæti þurft að hætta eftir að hafa misst meðvitund og hjartavandamál var greint

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.