fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Lindex lækkar verð um allt að 24%

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 31. mars 2017 23:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í ljósi almennrar styrkingar íslensku krónunnar og stöðugleika hefur Lindex á Íslandi ákveðið að lækka verð um allt að 24% eða 11% að meðaltali. Íslenska krónan hefur styrkst gagnvart flestum gjaldmiðlum síðustu misseri ásamt því að nokkur stöðugleiki er kominn á með tilkomu fljótandi gengisviðskipta með íslensku krónuna.  Þessi þróun hefur ekki síst verið gagnvart Bandaríkjadal, innkaupagjaldmiðli Lindex, sem gefur möguleika til þessara breytinga nú.

“Undanfarnar vikur hefur verið skoðað  sérstaklega áhrif þess að krónan var sett á flot í fyrsta sinn í tæp tíu ár.  Í ljósi þessara breytinga er sérlega skemmtilegt að geta skilað þessari búbót til okkar viðskiptavina.  Við munum nú, sem endranær, kappkosta að bjóða okkar vörur á sem hagkvæmasta verði og leitum stöðugt leiða til að ná því fram.” – segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi.

Á starfstíma sínum eða frá árinu 2011 hefur Lindex á Íslandi ekki hækkað almennt verð jafnvel þótt íslenska krónan hafi veikst á tímabilinu.   Þessi verðlækkun er sú þriðja í röðinni á s.l. 18 mánuðum.  Sú fyrsta var um áramótin þarsíðustu þegar niðurfellingu tolla var skilað að fullu og önnur verðlækkun í röðinni var í október síðastliðnum.  Sú þriðja tekur gildi þegar í stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.