fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Göngum saman selur falleg nisti til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 17. mars 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrktarfélagið Göngum saman fagnar tíu ára afmæli í ár og af því tilefni er ýmislegt á döfinni. Hlín Reykdal hefur hannað nisti í tveimur litum sem verða seld á næstu dögum til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini. Omnom verður með sérstakan súkkulaðiglaðning í apríl, Hildur Yeoman hannar boli og fleira fyrir mæðradagsgönguna 14. maí og Landsamband bakameistara leggur félaginu lið með sölu á brjóstabollum mæðradagshelgina eins og undanfarin ár. Í haust er svo fyrirhugað afmælismálþing félagsins.

Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og hefur veitt íslenskum vísindamönnum 70 milljónir í styrki frá upphafi. Styrktarfélagið leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar og vikulegar göngur félagsins eru opnar öllum áhugasömum. Upplýsingar um stað og stund er að finna á heimasíðu samtakanna gongumsaman.is og á facebook síðu félagsins.

Hér má sjá nistin sem fara í sölu á morgun.

Salan á nistunum hefst laugardaginn 18. mars klukkan 15:00 með gleðistund í verslun Hlínar á Fiskislóð 75. Nistin verða seld hjá Hlín í tvær vikur, eða meðan birgðir endast. Einnig er tekið við pöntunum í gegnum skilaboð á Facebook síðu félagsins ef fólk vill fá nisti í póstkröfu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Þrjú orð – Trump spyr sömu spurningarinnar hvað eftir annað

Þrjú orð – Trump spyr sömu spurningarinnar hvað eftir annað
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Þriggja ára stúlka vakti óhug hjá móður sinni – Sagðist muna fyrra líf sitt og nefndi hrollvekjandi dæmi

Þriggja ára stúlka vakti óhug hjá móður sinni – Sagðist muna fyrra líf sitt og nefndi hrollvekjandi dæmi
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
EyjanFastir pennar
Fyrir 17 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.