fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026

Sítrónu-límónukaka Helgu Gabríelu

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 12. mars 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Gabríela er þekkt fyrir að deila gómsætum og ljúffengum uppskriftum á bloggsíðu sinni helgagabriela.is. Hún deildi á dögunum uppskrift að sítrónu-límónuköku sem er að hennar sögn svo einföld að það er ekki hægt að klúðra henni.

Þessi æðislega sítrónu-límónukaka er alveg tilvalin til að útbúa og eiga í frysti fyrir matarboð, saumaklúbb eða ef gesti ber óvænt að garði. Það er ekki hægt að klúðra henni því hún er svo einföld! Uppskriftin er úr matreiðslubókinni „Gott Réttirnir okkar“ sem er í miklu uppáháldi hjá mér.

Botn

100gr möndlur

150gr döðlur (steinlausar)

50gr kókosmjöl

2 msk. kókosolía, fljótandi

Aðferð – botn:

  1. Hita ofninn í 180 gráður.
  2. Setjið allt í matvinnsluvél og maukið þar til hefur blandast vel saman.
  3. Setjið smjörpappír í hringlag form og þjappið botninn og upp með köntunum.
  4. Bakið í 10-15 mínútur eða þangað til botninn fer að gillast á köntunum.

Fylling

1 avókadó

3 msk kókosolía

1 banani (vel þroskaður)

3-4 msk. fljótandi sæta, lífrænt hlynsíróp eða annað

safi úr eini sítrónu eða tveimur límónum

örlítið salt

Aðferð – fylling:

  1. Maukið allt saman í matvinnluvél, hellið yfir botninn og setjið í frysti.
  2. Mér finnst kakan best 10-15 mínútum eftir að hún er tekin úr frysti.
  3. Þá er auðvelt að skera hana, kakan mjög fersk og góð og svo er hún æðisleg með þeyttum rjóma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Árásin á Íran sé ólögleg og hafi slæm áhrif – „Hver er þá hin yfirvofandi hætta?“

Árásin á Íran sé ólögleg og hafi slæm áhrif – „Hver er þá hin yfirvofandi hætta?“
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Fréttir
Í gær

Riðlaðist á dádýrshræi í vegkanti – Gæti átt fimm ára fangelsi yfir höfði sér

Riðlaðist á dádýrshræi í vegkanti – Gæti átt fimm ára fangelsi yfir höfði sér
Pressan
Í gær

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum
Pressan
Í gær

Á bíllinn að vera í D eða N þegar beðið er á rauðu ljósi?

Á bíllinn að vera í D eða N þegar beðið er á rauðu ljósi?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.