fbpx
Laugardagur 16.ágúst 2025

Þetta fá stjörnurnar sem eru tilnefndar til Óskarsverðlauna – 11 milljón króna gjafapoki

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 23. febrúar 2017 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óskarsverðlaunahátíðin verður haldin í 89. skipti sunnudaginn 26. febrúar. Þeir sem fengu 25 topp-tilnefningarnar og kynnir hátíðarinnar fá veglegan gjafapoka. „Allir vinna“ gjafapokinn tengist ekki Óskarsverðlaununum heldur er afþreyingar- og markaðsfyrirtækið Distinctive Assets á bak við pokann. Fyrirtækið hefur útvegað þessa stórfenglegu gjafapoka síðastliðin fimmtán ár.

Sjá einnig: Allar tilnefningarnar til Óskarsverðlauna 2017

Stofnandi Distinctive Assets sagði við Insider að verðmæti gjafapokans í ár sé tæplega ellefu milljónir (ISK), enda inniheldur hann mjög veglegar gjafir, eins og ferðalag til Hawaii, þriggja daga dvöl á höfðingjasetri í Kalíforníu og margt fleira. Skoðaðu hér fyrir neðan hvaða gjafir eru í pokanum í ár.

Dýrasta gjöfin í ár er þriggja daga dvöl í höfðingjasetri á Lost Coast Ranch í Norður-Kalíforníu.

Maður getur boðið allt að tíu vinum með sér í helgardvöl á þessu átján herbergja stórsetri.

Ódýrasta gjöfin er varalitur frá ChapStick.

Fimm nætur og sex dagar hjá Koloa Landing Resort í Hawaii.

Þar er heilsulind, tvær sundlaugar og sérstök setustofa til að njóta sólsetursins.

Þriggja nátta dvöl í svítu á Grand Hotel Tremezzo við Como vatn.

Vikudvöl hjá Golden Door heilsuhælinu í Suður-Kalífornía.

Þriggja nætur dvöl í svítu á Grand Hotel Excelsior Vittoria í Sorrento, Ítalíu.

Haze V3 úðatæki.

Hægt að nota tækið bæði inni og úti.

Fjórtán karata OM gull armband þakið demöntum frá YogaJewelz.

Kassi af eplum hvern mánuð í næstum heilt ár frá Opal.

Sérhannaður kassi af Crayola trélitum.

Koddi frá Casper.

Handgert trébox frá Bangarang með 199 spjöldum af jákvæðum frösum og aðgerðum.

Oomi byrjunarsett, sem breytir hvaða heimili sem er í „snjall“-heimili.

Ársbirgðir af Healing Saint luminosity skin serum ásamt hárörvunarefni sem á að koma í veg fyrir hármissi.

Súkkulaði frá Chocolatines.

Klæðnaður frá Belldini.

Þetta er aðeins brot af því sem er í pokanum! Kíktu hér til að sjá hvað er meira í pokanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Stefnir allt í að Baleba fari ekki til United

Stefnir allt í að Baleba fari ekki til United
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Átt þú grautfúlan kött? Það gæti verið þín sök

Átt þú grautfúlan kött? Það gæti verið þín sök
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Salah sá fyrsti til að afreka þetta á Englandi

Salah sá fyrsti til að afreka þetta á Englandi
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Maður í hjólastól lét rasísk ummæli falla og var skipað að yfirgefa svæðið

Maður í hjólastól lét rasísk ummæli falla og var skipað að yfirgefa svæðið
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Verður ekki með um helgina og allt bendir til þess að hann fari

Verður ekki með um helgina og allt bendir til þess að hann fari
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Síminn sektaður fyrir ólöglegar auglýsingar

Síminn sektaður fyrir ólöglegar auglýsingar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.