fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

VARÚÐ: Sophie gíraffi barnsins gæti verið fullur af myglu!

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 16. janúar 2017 13:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar barnatannlæknirinn Dana Chianese fann skrítna lykt af Sophie nagleikfangi á heimilinu þegar hú þreif það.  Hún ákvað því að skera það í sundur og skoða inn í það. Hún átti alls ekki von á því sem blasti við henni þegar hún opnaði leikfangið, svört mygla.

Sophie gírafinn er gríðarlega vinsælt barnanagdót sem selt er víða um heim. Gíraffinn fallegi er frá Frakklandi og þykir einstaklega góður valkostur að nagdóti fyrir ungbörn, sérstaklega þegar þau eru í tanntöku. Sophie gírafinn er með litlu gati því þegar börnin kreysta hann eða naga þá heyrist ákveðið hljóð sem börnum þykir mjög skemmtilegt. Raki eins og slef getur komist inn í gatið og getur það greinilega myglað með tímanum án þess að foreldrar taki eftir því.

Dana lét síðuna Good Housekeeping vita af þessu atviki og hafa fleiri foreldrar opnað gírafaleikfangið fræga og haft sömu sögu að segja. Sagði Dana um hræðilegu uppgötvunina sína:

„Ég fann heila vísindatilraun inni í honum. Illa lyktandi, ljót mygla bjó inn í uppáhalds nagdóti smábarnsins míns,“

Stephanie Oprea skar í sundur Sophie gíraffann á sínu heimili og sá þá að hann var svartur að innan vegna myglu.

Einn notandi á spjallþræði foreldrasíðunnar What to Expect prófaði að skera fæturna af gírafa barnsins síns og sá þá strax að hann var stútfullur af myglu. Var mynd birt af þessu á síðunni til þess að vara aðra foreldra við þessari hættu.

Börn geta í sumum tilfellum veikst vegna myglu. Ef leikföngin eru vel þrifin er oftast hægt að koma í veg fyrir myglu. Það er gríðarlega mikilvægt að þrífa öll glös, nagdót, leikföng, baðendur og annað sem raki getur lokast inn í. Mikilvægt er að skipta reglulega út öllu því sem gæti myglað. Sumt af þessu má setja í uppþvottavél, annað þarf að sjóða eða þrífa með ediki. Leiðbeiningar um þrif fylgja oftast með öllum nýjum leikföngum og drykkjarföngum. Nauðsynlegt er að þrífa öll leikföng sem geta safnað vatni að minnsta kosti einu sinni í viku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.