fbpx
Sunnudagur 02.nóvember 2025

Par gifti sig á Taco Bell – Brúðkaupsmyndirnar koma á óvart

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 28. júní 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar maður hugsar um brúðkaup þá leitar hugurinn ekki beint til Taco Bell. Margir eiga líklega erfitt með að ímynda sér að standa á móti maka sínum og játa ást sína fyrir framan ástvini á skyndibitastað. Það var hins vegar veruleikinn hjá pari sem gifti sig þann 25. júní á Taco Bell stað í Las Vegas. Brúðkaupsmyndirnar koma á óvart!

Yfir 150 pör tóku þátt í Taco Bell „Love and Tacos“ keppninni. Verðlaunin voru ferð til Las Vegas þar sem sigurvegarar giftu sig á skyndibitastað Taco Bell. Dan Ryckert og Bianca Monda unnu keppnina og voru fyrsta parið til að gifta sig á Taco Bell. Brúðhjónin eru bæði rosalegir Taco Bell aðdáendur.

„[Taco Bell] var reyndar eitt af fyrstu samræðunum sem við áttum saman. Hún sagði mér að hún myndi velja Taco Bell frekar en fínan mexíkóskan veitingastað alla daga vikunnar. Þá vissi ég að við myndum passa vel saman,“

sagði Dan við People.

Frá og með 7. ágúst getur hver sem gift sig á Taco Bell í Las Vegas. Brúðkaupspakkinn kostar rúmlega 60 þúsund krónur og inniheldur athöfnina, sérútbúinn Taco Bell varning, kampavínsflautur og „blómvönd“ búin til úr sósupökkum.

Ef þú vilt gifta þig á Taco Bell þá geturðu skoðað vefsíðuna þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Telur hann eiga skilið endurkomu í enska landsliðið – Lék síðast fyrir sjö sárum

Telur hann eiga skilið endurkomu í enska landsliðið – Lék síðast fyrir sjö sárum
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Sigurður Árni: „Hvernig getur barn sem hefur verið barið svona illa, varið þann sem barði það?“

Sigurður Árni: „Hvernig getur barn sem hefur verið barið svona illa, varið þann sem barði það?“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stórstjarna riftir samningi eftir skamma dvöl í sjöundu efstu deild

Stórstjarna riftir samningi eftir skamma dvöl í sjöundu efstu deild
Fókus
Fyrir 18 klukkutímum

Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum

Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Kemur Arnar þjóðinni á óvart með þessu á næstu dögum? – „Arnar er þannig“

Kemur Arnar þjóðinni á óvart með þessu á næstu dögum? – „Arnar er þannig“
EyjanFastir pennar
Fyrir 21 klukkutímum

Óttar Guðmundsson skrifar: Búðarrölt lögreglustjórans

Óttar Guðmundsson skrifar: Búðarrölt lögreglustjórans
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Halda vandræði Liverpool áfram?

Langskotið og dauðafærið – Halda vandræði Liverpool áfram?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.