fbpx
Laugardagur 27.desember 2025

Máttur vanans er mikill! – Hverju viltu breyta?

doktor.is
Mánudaginn 13. febrúar 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leiðin að styrkari líkama og heilbrigðara lífi felur í sér að þú verður að hyggja að matarvenjum þínum, draga úr neyslu hitaeininga og hreyfa þig meira.  Þetta eru tæplega ný tíðindi fyrir þig ef þú ert of þung/ur. Lífið er fullt af gildrum og ef þú ætlar að ná markmiði þínu verðurðu að breyta daglegum venjum.

Til þess að breyta þarftu að vita hverju þú vilt breyta.  Þú þarft að gera þér grein fyrir því hvernig þitt mynstur er.  Hvar getur þú breytt?  Hverju er auðveldast að breyta?  Settu þér raunhæf markmið, það er ekki vænlegt til árangurs að kúvenda öllu.    Góðir hlutir gerast hægt!

Mynd/Getty

Hreyfing er eitt af því allra mikilvægasta sem við gerum á hverjum einasta degi.  Það er nauðsynlegt fyrir alla að hreyfa sig.  Á hverjum degi fáum við fullt af tækifærum til að hreyfa okkur.

Hreyfing þarf ekki alltaf að vera skipulögð, eða í einhverju sérstöku samhengi eða við sérstakar aðstæður.

Það er mikið talað um að fara í átak í þessu eða hinu.  Námskeið í líkamsrækt getur auðvitað verið mjög gott, en það sem þarf til lengri tíma er hugarfarsbreyting.  Við fáum ótal tækifæri til að hreyfa okkur, án þess að utan um það þurfi að vera einhverjar sérstakar umbúðir.

Nýtum þau tækifæri sem gefast:

  • Þegar við leggjum bílnum okkar fyrir utan vinnuna eða verslun, er svo lítið mál að leggja aðeins lengra frá og fá smá göngutúr í leiðinni.
  • Við getum valið að ganga eða hjóla í vinnuna á hverjum degi, eða bara á góðviðrisdögum.
  • Ef við þurfum að fara upp nokkrar hæðir, getum við valið að ganga stigana í stað þess að taka lyftuna.  Við getum meira að segja byrjað á því að ganga alltaf bara eina eða tvær hæðir og taka svo lyftuna.
  • Við getum farið sér ferð út með ruslið.  Ekki bíða eftir því að einhver annar eigi leið framhjá.
  • Göngum út í búð ef okkur vantar eitthvað smáræði, ekki keyra.
  • Svo má alltaf fá sér hund.  Hundur þarf göngutúr á hverjum degi, ekki síður en við sjálf.  En þó þú eigir ekki hund þá er samt sem áður gott að fara í lengri og skemmri göngutúra.
  • Sért þú í kyrrsetustarfi er gott að standa upp á hverjum klukkutíma og ná í ½ glas af vatni eða fara á klósettið, hreyfa sig aðeins.
  • Í hádeginu er svo um að gera að fara í göngutúr og fá sér að snæða í leiðinni.  Ef þú tekur með þér nesti, þá gætir þú samt fengið þér göngutúr og keypt t.d. einn banana, vatn eða eitthvað annað lítið með.  Fá smá hreyfingu, ekki velja auðveldustu leiðina.

Settu þér ákveðið markmið sem mögulegt er fyrir þig að ná.  Hreyfing getur verið fólgin í heimilisstörfum, garðvinnu, hjólreiðum, sundi, leikfimi, þrekþjálfun, golfi eða hópíþróttum.

Mannslíkamanum má líkja við vél.  Það er nauðsynlegt að smyrja hana og hreyfa hana, annars ryðgar hún og stirðnar.  Nú fer vorið að koma og tíminn framundan góður til útiveru og göngutúra. Hreyfum okkur því á hverjum degi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

England: United vann sterkan sigur á Newcastle

England: United vann sterkan sigur á Newcastle
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Safnað fyrir Kjartan sem slasaðist í bílslysi í Suður-Afríku – „Kjartan er sannur vinur“

Safnað fyrir Kjartan sem slasaðist í bílslysi í Suður-Afríku – „Kjartan er sannur vinur“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Loksins klár í að spila 90 mínútur

Loksins klár í að spila 90 mínútur
Fókus
Fyrir 18 klukkutímum

Bað unnustunnar á Breiðamerkursandi – Íhaldssamir hneykslast á aldursmuninum

Bað unnustunnar á Breiðamerkursandi – Íhaldssamir hneykslast á aldursmuninum
Fókus
Fyrir 22 klukkutímum

Tók eftir alvarlegum mistökum í Home Alone – Atriði sem ganga ekki upp

Tók eftir alvarlegum mistökum í Home Alone – Atriði sem ganga ekki upp
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

,,Ég vissi af pressunni þegar ég kom til félagsins“

,,Ég vissi af pressunni þegar ég kom til félagsins“
433Sport
Í gær

Gerrard til í að hjálpa Liverpool

Gerrard til í að hjálpa Liverpool
Fréttir
Í gær

Sakamál ársins II: Morð í Súlunesi, ráðgáta á Edition, stoltur sakborningur og blóðug slagsmál á Litla-Hrauni

Sakamál ársins II: Morð í Súlunesi, ráðgáta á Edition, stoltur sakborningur og blóðug slagsmál á Litla-Hrauni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.