fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025

Bókmenntaverðlaun kvenna afhent í Höfða

Kristín Eiríksdóttir, Kristín Steinsdóttir og Unnur Jökulsdóttir hlutu Fjöruverðlaunin

Kristján Guðjónsson
Mánudaginn 15. janúar 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, 15. janúar. Þetta í tólfta sinn sem verðlaunin eru veitt en tilgangur þeirra er að stuðla að aukinni kynningu á ritverkum kvenna og hvetja konur í rithöfundastétt til dáða.

Verðlaunin í ár hlutu eftirfarandi rithöfundar. Kristín Eiríksdóttir fyrir skáldsöguna Elín, ýmislegt í flokki fagurbókmennta, Kristín Helga Gunnarsdóttir fyrir bókina Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels í flokki barna- og unglingabókmennta og Unnur Jökulsdóttir fyrir Undur Mývatns – um fugla, flugur, fiska og fólk í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis.

Dómnefndir Fjöruverðlaunanna 2018 skipa: Bergþóra Skarphéðinsdóttir íslenskufræðingur, Guðrún Lára Pétursdóttir ritstjóri og Salka Guðmundsdóttir leikskáld og þýðandi í flokki fagurbókmennta; Helga Haraldsdóttir sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Sigurrós Erlingsdóttir íslenskukennari og Þórunn Blöndal dósent í íslenskri málfræði í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis; Arnþrúður Einarsdóttir kennari, Sigrún Birna Björnsdóttir framhaldsskólakennari og Þorbjörg Karlsdóttir bókasafnsfræðingur og flokki barna- og unglingabókmennta.

Hér fyrir neðan má sjá rökstuðning dómnefndanna


Elín, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur (Forlagið, 2017)

Í skáldsögunni Elín, ýmislegt fléttar höfundur saman sögu tveggja kvenna sem eru dregnar sterkum og trúverðugum dráttum. Leikmunahönnuðurinn Elín og leikskáldið unga Ellen standa sitt hvoru megin við fullorðinsárin en á margslunginn hátt kallast tilvera þeirra á. Í bókinni er tekist á við höggbylgjurnar sem ríða yfir eftir áföll og halda áfram sínu nötrandi ferðalagi um lífið á djúpstæðri tíðni. Á einkar næman og áhrifaríkan hátt er hér fjallað um skynjun manneskjunnar á veruleikanum, flóttaleiðir hugans, einsemd, hið gleymda og falda. Frásagnartæknin er í senn úthugsuð og áreynslulaus. Elín, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur er gríðarlega vel skrifuð skáldsaga sem lifir áfram með lesandanum.

Undur Mývatns – um fugla, flugur, fiska og fólk. Unnur Jökulsdóttir (Mál og menning, 2017)

„Í geislum miðnætursólar sem hangir lágt á norðvesturhimni er vatnið glóandi eins og bráðið gull.“ Með þessum upphafsorðum er tónninn sleginn í bók Unnar Jökulsdóttur Undur Mývatns – um fugla, flugur, fiska og fólk. Í bókinni skynjar lesandinn töfra og fegurð Mývatns. Unnur ber djúpa virðingu fyrir náttúrunni og lýsir henni af ástríðu og hrifningu. Látlausar vatnslitamyndir eftir Árna Einarsson og Margaret Davies prýða bókina. Unnur kveikir fjölmargar hugrenningar um samhengi manns og náttúru og gerir lontuna, húsöndina og slæðumýið ódauðlegt. Unnur sýnir hvernig skeytingarleysi tortímdi kúluskítnum og lýsir áhyggjum af framtíð vatnsins ef við gætum þess ekki vel. Bókin Undur Mývatns er dýrmæt perla rétt eins og vatnið sjálft.

Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels. Kristín Helga Gunnarsdóttir (Mál og menning, 2017)

Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur segir frá Ishmael, 15 ára dreng á flótta frá Sýrlandi, og Salí, sýrlenskri stúlku sem býr í Kópavogi. Sjónarhornið flakkar milli þeirra tveggja og skapast þannig spenna sem heldur lesandanum föngnum. Sagan fjallar öðrum þræði um hörmungar en fyrst og fremst um mennsku og mannhelgi og er það undirstrikað með tilvitnunum úr Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna í upphafi hvers kafla. Bókin er einstaklega vel byggð, persónusköpun trúverðug og afar raunsæ og fjallar um málefni sem brennur á okkur öllum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Besta deildin: Vestri og ÍA töpuðu heima

Besta deildin: Vestri og ÍA töpuðu heima
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þorsteinn: „Erum komin með bakið upp við vegg“

Þorsteinn: „Erum komin með bakið upp við vegg“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Kyle Walker í Burnley

Kyle Walker í Burnley
EyjanFastir pennar
Fyrir 17 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Allir á einu máli um Höllu forseta

Allir á einu máli um Höllu forseta
Eyjan
Fyrir 18 klukkutímum

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni