fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fókus

Bandarísk Benjamín dúfa frumsýnd í ár

„Þessi mynd er algjört kraftaverkabarn,“ segir Erlingur Jack Guðmundsson, framleiðandi Benji, the Dove

Kristján Guðjónsson
Fimmtudaginn 11. maí 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benji The Dove, bandarísk endurgerð á íslensku kvikmyndinni Benjamín dúfa frá 1995, sem byggð var á verðlaunasögu Friðriks Erlingssonar, verður frumsýnd síðar á þessu ári. Þetta segir Erlingur Jack, einn framleiðenda myndarinnar í samtali við blaðamann DV.

Myndin er byggð á sögunni um Benjamín dúfu og vinum hans í reglu rauða drekans, en sögunni hefir verið breytt nokkuð og hún staðfærð. Leikstjóri er Kevin Arbouet og skartar myndin nokkrum ungum og óþekktum leikurum í aðalhlutverki.

Upptökur fóru fram í New York í fyrra, búið er að klippa myndina og er nú verið að vinna í tónlist og hljóðeftirvinnslu. „Við stefnum á að klára myndina í lok sumars og hugsanlega frumsýna hana í september, en það á þó eftir að koma betur í ljós,“ segir Erlingur. Hann segist vonast til að myndin nái inn í kvikmyndahús í Bandaríkjunum og jafnvel víðar en segir samkeppnina vera harða og vel geti verið að myndin rati beint inn á VOD-leigur og efnisveitur.

Nokkuð var fjallað um myndina í íslenskum fjölmiðlum árið 2015, meðal annars þegar tilkynnt var að Susan Kirr og Cathleen Sutherland, sem var ein af framleiðendum hinnar margverðlaunuðu þroskasögu Boyhood, myndu taka þátt í framleiðslunni. Þær sögðu sig þó báðar frá verkefninu, meðal annars vegna þess að ekki tókst að tryggja nægjanlegt fjármagn en í kjölfarið var ákveðið að taka myndina upp í New York frekar en Texas. „Þær hafa hins vegar verið frábærar í öllu ferlinu og ráðlagt mér mjög mikið,“ segir Erlingur.

Hann segir myndina hafa verið töluvert ódýrari í framleiðslu en íslensk kvikmynd á fullum styrkjum og segist hann fyrst og fremst vera virkilega sáttur við að hafa náð að klára verkefnið. „Þetta hefur verið mikið ævintýri og ég hef lært heil ósköp á því að gera þessa mynd – það er á hreinu! Við leikstjórinn grínumst stundum með að þessi mynd sé algjört kraftaverkabarn,“ segir Erlingur um Benji, the Dove.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Jóel fór með pakka til ókunnugs 7 ára drengs – „Hún féll og hendir honum út um miðja nótt, korter í jól“

Jóel fór með pakka til ókunnugs 7 ára drengs – „Hún féll og hendir honum út um miðja nótt, korter í jól“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þórðargleði þegar ljóst varð að Timothée Chalamet fengi ekki Óskarinn – En hvers vegna snerist fólk gegn leikaranum?

Þórðargleði þegar ljóst varð að Timothée Chalamet fengi ekki Óskarinn – En hvers vegna snerist fólk gegn leikaranum?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Louis Theroux nefnir verstu manneskju sem hann hefur tekið viðtal við

Louis Theroux nefnir verstu manneskju sem hann hefur tekið viðtal við
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lára gáttuð á verðlaunum sem fjögurra ára sonur hennar fékk á fótboltamóti um helgina

Lára gáttuð á verðlaunum sem fjögurra ára sonur hennar fékk á fótboltamóti um helgina
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stutt upptaka úr Ring-myndavél setti af stað óvænta atburðarás

Stutt upptaka úr Ring-myndavél setti af stað óvænta atburðarás
Fókus
Fyrir 4 dögum

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir ástarsambandið við Scorsese hafa haft fleiri lög en lasagna

Segir ástarsambandið við Scorsese hafa haft fleiri lög en lasagna