fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Hálfsystir Meghan skrifar bók

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 3. desember 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hálfsystir Meghan Markle, Samantha, vinnur að bók um systur sína. Meghan mun eins og alþjóð er kunnugt ganga í hjónaband með Harry Bretaprinsi á næsta ári. Samantha, sem er 53 ára og býr í Flórída, tjáði sig um samband Meghan og Harrys í viðtali við US Weekley skömmu eftir að fréttir um samdrátt þeirra tóku að birtast. Þar fór hún hörðum orðum um systur sína sem hún sagði vera sjálfselska og sjálfsupptekna. Hún sagði að Harry myndi blöskra ef hann vissi um framkomu Meghan við fjölskyldu sína. „Sannleikurinn um hana myndi ganga frá sambandi hennar við Harry, hann myndi ekki kæra sig um að vera með henni lengur,“ var haft eftir Samönthu. Nokkrum dögum síðar sagði Samantha að blaðamaður hefur haft rangt eftir henni og fór í fleiri viðtöl þar sem hún bar mikið lof á hálfsystur sína.

Meghan á tvö hálfsystkini, Samönthu og Thomas. Thomas hefur aldrei sagt styggðaryrði um Meghan og sagði nýlega við fjölmiðla að hún hefði alltaf verið prinsessa og að hann hefði alltaf verið afar stoltur af henni. „Það blasti alltaf við að eitthvað mikið myndi verða úr henni,“ sagði hann.

Samantha vinnur, sem fyrr segir, nú að bók um Meghan hálfsystur sína sem hún hefur ekki séð síðan við útskriftarathöfn árið 2008. Aðrir fjölskyldumeðlimir eru lítt hrifnir af þessu tiltæki og segja líklegt að bókin verði samansafn af lygum og gróusögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 15 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum