fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fókus

Keith Urban sagður í áfalli yfir meintu daðri Nicole Kidman við mótleikara sinn

Fókus
Fimmtudaginn 19. mars 2026 07:30

Simon Baker og Nicole Kidman. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðrómur um meint samband leikkonunnar Nicole Kidman og mótleikara hennar, Simon Baker, hefur vakið mikla athygli erlendra slúðurmiðla.

Kidman og Baker leika saman í nýjum sjónvarpsþáttum, Scarpetta, sem framleiddir eru fyrir streymisveituna Amazon Prime. Greint hefur verið frá því að samskipti þeirra utan tökustaðar hafi kveikt vangaveltur um að vinskapur þeirra sé komin á rómantískt stig.

Samkvæmt heimildarmanni sem rætt er við í tímaritinu Woman’s Day hefur þessi orðrómur haft mikil áhrif á fyrrverandi eiginmann Kidman, tónlistarmanninn Keith Urban.

Þá var hann ekki einhleypur

„Að sjá Nicole og Simon haldast í hendur, það fór illa í hann,“ er haft eftir heimildarmanninum.

Hann segir jafnframt að Urban hafi áttað sig á því að eðlilegt væri fyrir Kidman að leita stuðnings hjá Baker, sem áður hafi verið til staðar fyrir leikkonuna Naomi Watts eftir að hún skildi við Liev Schreiber. „Munurinn er sá að þá var Simon ekki einhleypur,“ bætti heimildarmaðurinn við.

Samkvæmt sömu heimild vonar Urban að hegðun þeirra Kidman og Baker sé fyrst og fremst til þess fallin að vekja fjölmiðlaathygli.

„Keith vonar að þau séu bara að gera þetta til að komast í fyrirsagnir, en þrátt fyrir það upplifir hann þetta sem svik, því bæði Nicole og Simon vita hversu sárt það myndi vera fyrir hann ef jafnvel vísbending um rómantík kæmi upp. Hann hafði þegar grunað að þau væru að færast nær hvort öðru á meðan á tökum stóð. Þetta er orðið að hans verstu martröð.“

Ekki það sem samið var um?

Kidman sótti um skilnað frá Urban í september í fyrra, en þau höfðu verið gift frá árinu 2006. Þau eiga tvær dætur saman, 16 og 18 ára.

Simon, sem er ástralskur ríkisborgari eins og Kidman og Urban, er tveimur árum yngri en Kidman, eða 56 ára. Hann var giftur leikkonunni Rebeccu Rigg í rúm 20 ár, en þau skildu árið 2020.

Kidman og Baker hafa þekkst um áratugaskeið, og segir heimildarmaðurinn að Urban sé ósáttur við að þau hafi rætt náið samband sitt í fjölmiðlum.

„Hann hatar að þau séu að gefa viðtöl um hversu náin þau eru. Hann er í algjöru áfalli yfir því að hún skuli flagga nýju sambandi svona fljótt eftir skilnað þeirra. Þetta er ekki það sem þau sömdu um með hagsmuni dætranna í huga.“

Einnig er því haldið fram að Baker kunni að vera Urban ákveðin ógn. „Simon er raunveruleg ógn við Keith því stelpurnar dýrka hann,“ sagði heimildarmaðurinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða
Fókus
Fyrir 6 dögum

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Nicole Kidman hefur kysst marga en þessi koss var sá allra versti

Nicole Kidman hefur kysst marga en þessi koss var sá allra versti