fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fókus

Louis Theroux nefnir verstu manneskju sem hann hefur tekið viðtal við

Fókus
Mánudaginn 16. mars 2026 08:30

Louis Theroux. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski heimildarmyndagerðarmaðurinn Louis Theroux hefur komið víða við á ferli sínum í sjónvarpi, gert heimildarmyndir um undarleg viðfangsefni og tekið viðtöl við marga skrautlega einstaklinga.

Theroux er nú kominn aftur með athyglisverða heimildarmynd sem sýnd er á Netflix, Inside The Manosphere, sem fjallar einkum um áhrifavalda sem fjalla um karlmennsku, kynjahlutverk og samfélagsstöðu karla.

Í tilefni af frumsýningu myndarinnar ræddi Theroux við LAD Bible þar sem hann er meðal annars spurður að því hver sé „versta manneskjan“ sem hann hefur rætt við.

Theroux segir að einn beri höfuð og herðar yfir aðra en það er sjónvarpsmaðurinn alræmdi Jimmy Savile. Hann naut gífurlega vinsælda í Bretlandi áratugum saman en eftir dauða hans árið 2011 kom skuggaleg fortíð hans upp á yfirborðið. Hann hafði misnotað hundruð einstaklinga áratugum saman og voru fórnarlömbin bæði börn og fullorðnir einstaklingar.

Theroux, sem hefur byggt upp orðspor sitt með því að kafa djúpt í umdeild samfélagsmál og kynna sér jaðarhópa og öfgafulla einstaklinga, gerði fyrst heimildarmynd um Savile árið 2000. Þá voru kynferðisbrot Savile ekki komin í umræðuna.

„Hugurinn minn leitar gjarnan til Jimmy Savile,” segir Theroux og bætir við að hann hafi upplifað undarlega togstreitu eftir að umræðan um brot Savile komu upp á yfirborðið. Hann fylgdi þessu eftir í annarri heimildarmynd um Savile árið 2016 þar sem hann rifjaði upp fyrir samskipti sín við Savile.

Hann hefur ítrekað lýst yfir sektarkennd vegna þess að hafa, eftir tökur á fyrri myndinni, farið að líta á Savile á vingjarnlegri hátt í óformlegum samskiptum. „Þegar síðan kom í ljós að hann hafði misnotað og ráðist á karla og konur, drengi og stúlkur, snerist hugurinn strax að þeirri tilfinningu að ég hefði leyft mér að hugsa til hans á þann hátt.“

Hann hefur einnig sagst óska þess að hafa gengið harðar fram gagnvart Savile á sínum tíma, spyrja harðari spurninga og reynt á einhvern hátt að draga hann til ábyrgðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“
Fókus
Í gær

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga
Fókus
Fyrir 2 dögum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum
Fókus
Fyrir 1 viku

Sannleikurinn á bak við skilnað Pink og hvers vegna hún harðneitaði fréttum

Sannleikurinn á bak við skilnað Pink og hvers vegna hún harðneitaði fréttum
Fókus
Fyrir 1 viku

Flutti til Íslands en gafst upp eftir sjö mánuði – „Mér fannst ég vera að missa vitið“

Flutti til Íslands en gafst upp eftir sjö mánuði – „Mér fannst ég vera að missa vitið“