fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fókus

Jóel fór með pakka til ókunnugs 7 ára drengs – „Hún féll og hendir honum út um miðja nótt, korter í jól“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 16. mars 2026 14:30

Jóel Sæmundsson. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Eins og Guðni prestur sem er búinn að jarða mömmu, ömmu og barnsmóður mína og skírði barnið okkar.  Yndislegur. Hann segir svo fallegt í jarðarförum, hann talar um að við getum farið í gegnum lífið án þess að syrgja einhvern af því við elskum aldrei. Hin tegundin á sorginni er öll þessi ást,“

segir Jóel Sæmundsson leikari og leikstjóri í viðtali í Fullorðins.

Segist Jóel tala við látna ástvini sína þegar eitthvað er. „Þá ertu með einhvers konar haldreipi, þá ertu með fólkið þitt enn þá en færð sorgartilfinningu. Eins og akkúrat núna finn ég þyngsl hérna yfir. Tár er losun á tilfinningum og þyngslum.“

Segir hann suma minnast látinna ástvina í öllu í kringum sig. Segir Jóel það ekki gera neinum greiða þegar sorgin verður að persónuleika einhvers.  Segir hann alla lenda í einhverju og vera að glíma við einhverja erfiðleika.

Jóel segir þakklætið það besta í heimi og þegar við minnumst látinna ástvina þá hugsum við um hvað við erum þakklát fyrir.

Rifjar Jóel upp að á Facebook hafi verið auglýst eftir pakka fyrir sjö ára gamlan dreng, en þar hafi greinilega vantað eitthvað upp á.

„Ég fór með pakka handa honum og mér er sagt að þetta sé sjö ára strákur, sem ég veit ekki nánar um. Greinilega enginn pabbi til staðar og móðirin í eiturlyfjum, búin að ná sér, hann kominn aftur til hennar. Hún féll og hendir honum út um miðja nótt, korter í jól. Það er hrikalega sorglegt og ég hugsa: „Börnin mín þurfa ekki að hugsa um þetta, þau þurfa ekki að hafa áhyggjur af þessu.““

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“
Fókus
Í gær

Mikill hraði og streita farin að birtast í heilsuleysi hjá stórum hópi Íslendinga

Mikill hraði og streita farin að birtast í heilsuleysi hjá stórum hópi Íslendinga
Fókus
Fyrir 2 dögum

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga
Fókus
Fyrir 2 dögum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum
Fókus
Fyrir 1 viku

Sannleikurinn á bak við skilnað Pink og hvers vegna hún harðneitaði fréttum

Sannleikurinn á bak við skilnað Pink og hvers vegna hún harðneitaði fréttum
Fókus
Fyrir 1 viku

Flutti til Íslands en gafst upp eftir sjö mánuði – „Mér fannst ég vera að missa vitið“

Flutti til Íslands en gafst upp eftir sjö mánuði – „Mér fannst ég vera að missa vitið“