fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fókus

Grímur setur Funkis-höllina aftur á sölu

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 21. september 2025 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grím­ur Garðars­son, eig­andi Best­sell­er á Íslandi, hef­ur einbýlishús sitt að Sjafnargötu í Reykjavík aftur á sölu. Fé­lag Gríms, Sonja ehf., er skráður eig­andi húss­ins. Húsið hefur áður verið auglýst til sölu, bæði árið 2023 og 2024, en ekki selst þrátt fyrir að vera glæsilegt hús í hjarta miðborginnar.

Eignin er 384 fm á þremur hæðum, byggt 1930 í svokölluðum Funkis-stíl. Fast­eigna­mat húss­ins er 233.600.000 kr. en óskað er eft­ir tilboðum. Húsið var uppgert að innan árið 2020, auk þess sem skipt var um þak og settar þaksvalir í staðinn, en af þeim er gott útsýni yfir borgina.

Eignin skiptist í: frá Sjafnargötu er gengið upp nokkrar tröppur inn á miðhæð, sem skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús og borðstofu með útgangi út á suðursvalir, og tvær stofur.

Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi, frá hjónaherberginu er útgengt á suðursvalir og inn af herberginu er sér baðherbergi.

Af stigapalli efri hæðar er gengið upp í arinstofu á efstu hæð hússins, þaðan er hægt að ganga út á þaksvalirnar.

 

Kjallari er með sér inngangi og skiptist í hol, þvottahús, tvö herbergi, skrifstofu, baðherbergi og geymslu. Möguleiki er á að útbúa séríbúð í kjallara.  Bílskúr fylgir og sér bílastæði fylgir húsinu fyrir framan hann.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí
Fókus
Fyrir 3 dögum

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“