fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fókus

Fór í trekant með kærustunni og vinkonu hennar – Það hafði ófyrirséðar afleiðingar

Fókus
Fimmtudaginn 19. júní 2025 14:31

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tuttugu og sjö ára karlmaður er í öngum sínum eftir að trekantur með kærustu hans og bestu vinkonu hennar hafði afdrifaríkar afleiðingar í för með sér.

Maðurinn leitaði til Deidre, sambandsráðgjafa The Sun, þar sem hann lýsti því hvernig líf hans hefur snúist á hvolf eftir að hann féllst á að stunda kynlíf með kærustu sinni og vinkonu hennar.

„Þó að kynlífið hafi verið skemmtilegt þá segist vinkonan núna vera ólétt eftir mig,“ segir maðurinn.

Kærastan með skothelt plan

Undir venjulegum kringumstæðum myndu slíkar aðstæður setja mörg sambönd í uppnám en maðurinn segir að kærasta hans vilji núna gjarnan að þau búi öll saman undir sama þaki. „Þetta er martröð,“ segir hann.

„Ég er 27 ára og kærastan mín er 24 ára og við erum búin að vera saman í tæpt ár. Mér fannst kynlífið okkar mjög gott – hún er frábær stelpa og ég veit að hún elskar mig,“ segir hann.

Hann segir að kvöld eitt ekki alls fyrir löngu hafi kærastan haft á orði að besta vinkona hennar væri heit fyrir honum og þær hefðu rætt saman um að verja kvöldstund öll saman.

„Ég var hikandi til að byrja með – það hefur aldrei verið sérstök fantasía hjá mér að fara í trekant – en ég taldi að við gætum bara haldið áfram með líf okkar ef ég samþykkti þetta. Við fengum okkur nokkra drykki til að komast í rétta skapið,“ segir hann.

Eitt leiddi svo af öðru og segist hann hafa verið mjög stressaður á meðan kærastan og vinkonan létu eins og þær hefðu aldrei gert neitt annað. „Kynlífið var frábært og eftir þetta var allt eins og það var áður. En svo, mér til mikils hryllings, tilkynnti vinkonan að hún væri ólétt. Og núna vill kærastan mín að hún flytji inn til okkar og er meira að segja byrjuð að tala um að vilja sjálf eignast barn með mér.“

Fólk verði að muna eftir verjunum

Maðurinn veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga.

„Þetta er að gerast svolítið hratt fyrir minn smekk. Sambandið okkar er enn frekar nýtt og ég er alls ekki tilbúinn í að taka svona stórt skref. Ég er ekki einu sinni tilbúinn til að verða pabbi, hvað þá að eiga tvö börn.“

Deidre svarar manninum á þá leið að það sé frábær hugmynd að nota verjur í kynlífi til að koma í veg fyrir ótímabæra þungun.

„En ákvörðunin um barnið hvílir á herðum vinkonu kærustunnar þinnar,“ segir hún og bætir við að hann þurfi að fara fram á DNA-próf til að sýna fram á að hann sé faðirinn ef hún ákveður að eiga barnið.

„Ef það er þitt ber þér skylda til að hjálpa til við framfærslu þess. Í hinum fullkomna heimi mun barnið eiga tvo kærleiksríka foreldra. Jafnvel þó þið foreldrarnir séuð ekki saman geturðu haft jákvæð áhrif á líf þess,“ segir hún en ítrekar mikilvægi þess að nota verjur, ekki einungis til að koma í veg fyrir þungun, heldur einnig til að fólk stefni ekki kynheilbrigði sínu í hættu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 6 dögum

Öskraði upp yfir sig þegar hún sá stöðuna á bankareikningnum

Öskraði upp yfir sig þegar hún sá stöðuna á bankareikningnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sakar fyrrverandi þjálfara um kynferðislega áreitni – „Hún gerði líf mitt að lifandi helvíti“

Sakar fyrrverandi þjálfara um kynferðislega áreitni – „Hún gerði líf mitt að lifandi helvíti“
Fókus
Fyrir 1 viku

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma
Fókus
Fyrir 1 viku

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir
Fókus
Fyrir 1 viku

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu
Fókus
Fyrir 1 viku

Brooklyn Beckham lokar á fjölskylduna og svarar ekki skilaboðum

Brooklyn Beckham lokar á fjölskylduna og svarar ekki skilaboðum