fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024
Fókus

Britney berar allt aftur! – „Næstum eins og hún þurfi að setja eitthvað á Instagram til að fá athygli“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 18. janúar 2024 16:20

Britney Spears

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Britney Spears sneri aftur á Instagram í gær og beraði allt á mynd í fríi sínu í Frönsku Pólýnesíu.

„Var að lenda í Frönsku Pólýnesíu !!!“ skrifar söngkonan við mynd af sér naktri, en til að gæta velsæmis og láta ekki blokka sig af samfélagsmiðlinum setur söngkonan tvö demant-emoji yfir brjóst og bossa.

Britney gladdi einnig aðdáendur sína með myndbandi af henni sjálfri þar sem hún dansaði um í gulum, stuttum og gegnsæum kjól.  “Á leið í kvöldmat á Catch fyrir tveimur kvöldum !!! Dansa eins og ég ætti að gera alla daga lífs míns !!!“

Britney, sem er orðin 42 ára, hefur áður sagt að hún sé að sleppa sér lausri, orðin frjáls eftir 13 ára sjálfræðissviptingu.

„Ég veit að margir skilja ekki hvers vegna ég elska að taka myndir af mér nakinni eða í nýjum kjólum,“ skrifaði Britney í endurminningabók sinni The Woman In Me.

„Ég held að ef fólk hefði verið myndað af öðrum þúsund sinnum, ýtt og stillt upp til að öðlast samþykki annarra, myndi fólk skilja að ég fæ mikla gleði af því að stilla mér upp eins og mér finnst vera kynþokkafullt og taka mínar eigin myndir, og gera það sem ég vil.“

Synirnir ekki sáttir við myndir og myndbönd móður sinnar

Þó að myndirnar og færslur Britney veiti henni ákveðið frelsi og fróun þá hafa þær leitt til ágreinings meðal hennar og sona hennar Preston, 18 ára og Jayden, 17 ára.

„Það er næstum eins og hún þurfi að setja eitthvað á Instagram til að fá athygli,“ sagði Jayden við breska ITV í fyrra. „Þetta hefur haldið áfram í mörg mörg ár og það eru miklar líkur á því að þetta hætti aldrei.“

Faðir drengjanna og fyrrum eiginmaður Britney, Kevin Federline sagði við ITV að hann útskýrði fyrir sonunum að myndirnar og myndböndin væru „bara önnur leið sem móðir þeirra kýs að tjá sig.“ Hann sagði að það væri þó erfitt fyrir synina að sjá móður sína nakta á netinu.

„Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að vera unglingur, þurfa að mæta í skólann. Hver ​​veit hversu margir spyrja þá um myndirnar og myndböndin?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra
Fókus
Í gær

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn
Fókus
Fyrir 2 dögum

TikTok-stjarnan lést á afmælisdegi kærastans

TikTok-stjarnan lést á afmælisdegi kærastans
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Britney rýfur þögnina eftir meint hörkurifrildi hennar og kærastans – „Ég veit að mamma mín tengist þessu!“

Britney rýfur þögnina eftir meint hörkurifrildi hennar og kærastans – „Ég veit að mamma mín tengist þessu!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“