fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Fókus

Hvetur fólk til að skipta út þessu orði: „Hættum að afsaka okkur í sífellu“

Fókus
Mánudaginn 29. apríl 2024 16:30

Ragga nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur, betur þekkt sem Ragga nagli, segir mikilvægt að kunna að biðjast afsökunar þegar við höfum gert eitthvað rangt. En það er engin þörf á að biðjast í sífellu afsökunar þegar við raunverulega þurfum þess ekki.

Ragga heldur úti vinsælli Facebook-síðu þar sem hún deilir allskonar fróðleik sem margir geta tileinkað sér.

„Það er mikilvægt að kunna að biðjast afsökunar þegar við höfum gert eitthvað rangt. Ef við erum alltaf sein í hittinga. Erum alltaf á sjálfshátíð í samskiptum við aðra. Svörum skilaboðum eftir dúk og disk. Þá þurfum við að sýna iðrun með orðum en aðallega með breyttri hegðun.En alltof oft segjum við SORRÝ þegar við þurfum ekki að taka ábyrgð á gjörðum eða orðum,“ segir Ragga og bætir við að þegar „æi, sorrý með mig“ sé fyrsta setningin í flestum samtölum lækki það sjálfstraustið og grefur undan sjálfsvirðingunni.

„Þú afsakar þig í bak og fyrir svo enginn dæmi þig eða sé fúll. Manneskjugeðjun á rætur í lágu sjálfsmati, óöryggi í samböndum, lélegu sjálfstrausti og ótta við höfnun. Orð eru öflug. Tungumálið sem við notum um okkur sjálf mótar sjálfsmyndina,“ segir Ragga sem mælir með því að skipta orðinu sorrý út.

„Prófaðu að skipta út SORRÝ-inu fyrir TAKK. Í staðinn fyrir að gera þig smærri, sýndu frekar þakklæti. Við þurfum að læra að við megum taka rými. Að við eigum líka skilið að ást og stuðning. Að við erum ekki byrði á öðrum. Við erum ekki vesen. Réttu úr bakinu, ýttu hökunni fram og úsaðu út jákvæðri orku og finndu hvernig sjálfsmyndin eflist og sjálfstraustið keyrist upp í rjáfur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Svona leit hún út fyrir breytingarnar

Svona leit hún út fyrir breytingarnar
Fókus
Í gær

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Þetta er mæðradagslúkkið í ár“

Vikan á Instagram – „Þetta er mæðradagslúkkið í ár“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég upplifði mig sem vandamál eða að ég væri fyrir, það er ekki góður staður að vera á“

„Ég upplifði mig sem vandamál eða að ég væri fyrir, það er ekki góður staður að vera á“