fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fókus

Gifti Adele sig í annað sinn og lét aðdáendur ekki vita?

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 18. september 2023 17:00

Kærustuparið eða hjónin Rich og Adele.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska tónlistarkonan Adele hefur tryllt aðdáendur sína eftir að hafa kallað kærasta sinn, Rich Paul, manninn sinn á tónleikum hennar í Las Vegas á laugardagskvöld.

„Þú getur ekki gifst mér. Ég er gagnkynhneigð elskan mín og maðurinn minn er hér í kvöld,“ sagði Adele við konu í áhorfendahópnum. 

Þegar konan svaraði:  „Geturðu reynt?“  hló Adele og sagði: „Nei, ég vil ekki reyna. Ég er með Rich. Þú ert skrítin, láttu mig í friði.“

Myndband af samskiptunum var birt á TikTok og eru áhorf á það orðin um hálf milljón. Aðdáendur Adele voru fljótir að grípa orð hennar um eiginmann. 

„Eiginmaður hennar??? omgg Adele Paul??? 💗💗💗,“ skrifaði einn.  „Nei. stopp. Er mamma gift??” skrifaði annar.  Þriðji skrifaði: „Fyrirgefðu frú frú, hvað?“

@adeleslittleloveee adele calls rich, her husband during weekend 27 || the way i made this video yesterday>> @adeleslittleloveee🫶🏻 #adele30 #adele25 #adele21 #adele19 #adele #adele #adeleadkins #adelelaurieblueadkins #adelefans #adelefan #daydreamers #daydreamer #adelesongs #adelesong #songs #song #foryoupage #fypage #foryou #4up #fyp #trending #xyzbca #omgpage #viral #edit #weekendswithadele #adeleslittleloveee #weekend27 #week27 @Adele Access ♬ original sound – adeleslittleloveee🫶🏻

Adele og íþróttaumboðsmaðurinn Rich Paul opinberuðu samband sitt í júlí árið 2021 þegar þau sátu saman á NBA körfuboltaleik. Í viðtali við Rolling Stone tímaritið nokkrum mánuðum seinna dásamaði Adele Paul og sagði hann ótrúlegan og hreinskilinn. Sagði hún að samband þeirra væri það auðveldasta sem hún hefði upplifað þegar kæmi að ástarsamböndum. Ári síðar var Adele farin að bera perulaga demantshring, en í viðtali við tímaritið Elle í ágúst árið 2022 neitaði hún því að þau væru trúlofuð og sagðist hún einfaldlega elska hágæða skartgripi. 

Sambandið opinberað,
Mynd: Getty

Adele á soninn Angelo sem er orðinn tíu ára með fyrrverandi eiginmanni sínum, Simon Konecki, en þau skildu árið 2019 eftir  rúmlega þriggja ára hjónaband. Paul á þrjú börn frá fyrra sambandi.

Adele sem er orðin 35 ára segist til í fleiri börn. Í síðasta mánuði sagði hún hreinskilin við áhorfendur á tónleikum sínum í Las Vegas, Weekends With Adele, að hún vildi eignast fleiri börn. „Ég er tilbúin að verða mamma fljótlega aftur,“ sagði hún og sagðist vera tilbúin með lista yfir barnanöfn.

„Mig langar virkilega að verða mamma aftur fljótlega. Þannig að í hvert skipti sem ég sé nafn sem mér líkar, skrifa ég það niður í símann minn.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Nærbuxur stjörnunnar verulega umdeildar – „Er þetta Rosa Parks?“

Nærbuxur stjörnunnar verulega umdeildar – „Er þetta Rosa Parks?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lára og lyfjaprinsinn eignuðust dóttur

Lára og lyfjaprinsinn eignuðust dóttur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sex ára dóttir Diljár fékk einstaka gjöf – ,,Meyra og tárvota mamman er svo þakklát“

Sex ára dóttir Diljár fékk einstaka gjöf – ,,Meyra og tárvota mamman er svo þakklát“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Smáatriði í mynd af Justin Bieber á Íslandi veldur fjaðrafoki

Smáatriði í mynd af Justin Bieber á Íslandi veldur fjaðrafoki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Vinn í sálinni, huganum og rassinum“

Vikan á Instagram – „Vinn í sálinni, huganum og rassinum“