Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Jerry Springer er látinn, 79 ára að aldri. TMZ greinir frá andláti hans.
Springer stýrði hinum geysivinsæla en jafnframt umdeilda þætti The Jerry Springer Show í um 27 ár. Þar voru gestir meðal annars leiddir saman til að útkljá hin ýmsu deilumál sem enduðu oftar en ekki með slagsmálum.
Talsmaður Springer-fjölskyldunnar segir að Jerry hafi greinst með krabbamein fyrir nokkrum mánuðum en heilsa hans hafi farið hratt versnandi síðustu vikur. Hann lést á heimili sínu á Chicago-svæðinu.
Áður en Springer sló í gegn í sjónvarpi reyndi hann meðal annars fyrir sér í stjórnmálum. Hann falaðist eftir því að komast á þing árið 1970 en hafði ekki erindi sem erfiði.
Árið 1991 hóf þáttur hans göngu sína og var hann sýndur í 27 ár, eða til ársins 2018 að hann ákvað að setjast í helgan stein.
Til að byrja með fjallaði þátturinn um pólitík en til að trekkja yngri aðdáendur að var honum breytt og lét árangurinn ekki á sér standa. Var þátturinn svo vinsæll um tíma að hann sló spjallþætti Opruh Winfrey við í sumum borgum Bandaríkjanna.