Síðan poppstjarnan Britney Spears fékk sjálfræði á ný hefur hún birt gríðarlegt magn af nektarmyndum á samfélagsmiðlinum Instagram. Í fyrstu tóku aðdáendur hennar myndunum fagnandi og hugsuðu með sér að þarna væri hin frjálsa Britney loksins komin á stjá. Nú virðist þó staðan vera önnur ef marka má athugasemdirnar við nýjustu nektarmyndina sem hún birti á Instagram um helgina.
Sumir aðdáendur hennar telja nefnilega núna að Britney sé í raun og veru ekki sjálf að birta þessar myndir. Nokkrir aðdáendur hennar hafa nú beðið stjörnuna um að fara í beina útsendingu á Instagram til að sýna að hún sé í raun og veru sú sem er að birta myndirnar sem um ræðir. Þá hefur hún einnig verið beðin um að „blikka“ ef það er í lagi með hana. „Britney er EKKI að birta þetta,“ segir til dæmis í einni athugasemd við færsluna. Þá segir í annarri athugasemd að hegðun Britney á samfélagsmiðlinum sé farin að minna á þátt úr Black Mirror þáttunum vinsælu.
Það sem vekur einnig áhyggjur aðdáenda hennar er textinn sem hún lætur fylgja með myndinni en hann er vægast sagt furðulegur. Hér í færslunni fyrir neðan má sjá textann sem um ræðir en einhverjir hafa haft það á orði að textinn virðist vera skrifaður af vélmenni, svo samhengislaus er hann.
View this post on Instagram