Þegar Elísabet Bretlandsdrottning dó ákvað Meghan Markle að stöðva birtingar á hlaðvarpi sínu, Archetypes, í fjórar vikur. Talið hefur verið að það gæti hafa verið gert til að koma í veg fyrir að óþæginlegar upplýsingar um konungsfjölskylduna kæmu fram á meðan verið væri að syrgja drottninguna. Burtséð frá því hvort það sé hin raunverulega ástæða eða ekki þá kom út nýr þáttur af hlaðvarpinu í dag.
Í upphafi þáttarins segir Meghan að hún hafi alltaf elskað að kynnast öðrum menningarheimum. Hún talar því um það þegar hún heimsótti kóreskt spa í fyrsta skipti með móður sinni þegar hún var á táningsaldri.
Meghan segir það hafa verið auðmýkjandi upplifun þar sem um hafi verið að ræða nektarspa. „Það var mjög auðmýkjandi fyrir stelpu sem var í miðjum kynþroska að fara inn í herbergi með konum á aldrinum 9 til 90 ára, allar að ganga um naktar og bíða eftir því að fá líkamsskrúbb á einu af borðunum sem voru öll þarna í röð. Það eina sem ég vildi var sundbolur,“ segir Meghan í þættinum.
Meghan segir svo að hún hafi að lokum komist yfir nektina og vandræðaleikann sem fylgdi henni. Þá fór hún ásamt móður sinni upp í annað herbergi þar sem þær fengu sér saman afar bragðgóðar núðlur.
Hlaðvarpsþátturinn sem kom út í dag fjallar um rasisma og staðalímyndir asískra kvenna. Fjölmiðlakonan Lisa Ling og grínistinn Margaret Cho voru gestir Meghan í þættinum. Ræddi Meghan við þær um ýmsar myndir sem ýttu undir neikvæðar staðalímyndir asískra kvenna. Hún nefndi sem dæmi Austin Powers in Goldmember og Kill Bill. Talað var um að asískar konur væru til að mynda kyngerðar í þessum og fleiri myndum.
„Þetta er búið að seytla inn í fullt af skemmtanaefni. En þessar eitruðu staðalímyndir kvenna af asískum uppruna, þær hverfa ekki þegar kreditlistinn rúllar niður skjáinn.“