Stefnumóta- og sambandssérfræðingurinn Louanne Ward afhjúpar sex ástæður fyrir því að fólk, sem vill vera í sambandi, er á lausu.
Louanne starfar sem stefnumótaþjálfari (e. dating coach), í stuttu máli hjálpar hún einhleypu fólki að fara á stefnumót og finna ástina.
Hún deildi á dögunum myndbandi á samfélagsmiðlum þar sem hún fer yfir sex algeng mistök sem einhleypt fólk gerir. DailyMail greinir frá.
Fyrstu mistökin eru að ætlast til þess að makinn þinn sé nákvæmlega eins og þú vilt að hann sé. Hún er þá að meina að fólk setur óraunhæfar kröfur á maka sem enginn getur uppfyllt, og skapar þar af leiðandi spennu og gremju, og endar sambönd áður en þau ná almennilega að byrja.
Fólk er eins ólíkt og það er margt, og önnur mistök sem hún segir að einstaklingar í leit að ástinni eiga til með að gera, er að líta á það sem galla.
„Það er mikilvægt að eiga eitthvað sameiginlegt, en einnig að vera ólík á einhverjum sviðum.“
Þriðju mistökin eru að gleyma því að lifa í núinu með nýjum maka. „Þú ert að bera nýjan maka saman við gamlan kærasta/gamla kærustu, þannig þú ert ekki beint til staðar í þessu nýja sambandi,“ segir hún.
Fjórðu mistökin eru að hætta með makanum ef hann „tikkar ekki í öll box.“
Fimmtu mistökin eru að enda sambönd of snemma. „Þú slítur sambandinu um leið og það verður erfitt, frekar en að vinna í gegnum það,“ segir hún.
Dómharka eru sjöttu mistökin, að taka skyndiákvarðanir af yfirborðskenndum ástæðum, hún hvetur fólk til að gefa öðrum tækifæri.
View this post on Instagram