Madonna er fyrir löngu orðin goðsögn í tónlistarheiminum en hún er langt frá því hætt að vekja athygli. Madonna, sem er 63 ára gömul, birti í gær myndir af sér á Instagram þar sem hún er ber að ofan. Myndirnar hafa vakið gríðarlega athygli, rúmlega 670 þúsund manns hafa sett hjarta við þær á Instagram-síðu hennar og athugasemdirnar teljast í tugum þúsunda.
Með myndunum sagði Madonna einfaldlega að það væri pynding að máta föt. „Mátanir eru ein tegund pyndinga,“ skrifar hún og bætir við fjölmörgum tjáknum (e. emoji).
Fylgjendur Madonnu voru yfir sig hrifnir af myndunum og hrósuðu fjölmargir henni í hástert. „Mögnuð drottning,“ skrifar til að mynda einn fylgjandi hennar. „Guð minn góður, einhver þarf að hringja á sjúkrabíl… þú ert ótrúleg,“ skrifar annar.
„Hvað sem þú ert að gera þá er það að virka! Þú ert nákvæmlega sú sem þú átt að vera, drottning drottninganna! Haltu þessu áfram! Þú átt það skilið!“ segir svo enn annar.
View this post on Instagram