Sara Dís Gunnarsdóttir dansari og kærasti hennar Anton Pétur Blöndal héldu kynjaveislu með glæsibrag í gærkvöldi.
Í svona veislum er vinsælt að skera köku sem er ýmist bleik eða blá að innan, eða stinga gat á blöðru sem inniheldur annað hvort bleikt eða blátt konfettí. En Sara Dís og Anton tóku þetta á næsta stig og komust að kyni barnsins með púströri mótorhjóls.
„Anton hefur lengi verið að keppa í mótokross og við notuðum hjólið hans í þetta,“ segir Sara Dís í samtali við DV.
„Við fengum vinkonu okkar til að setja bleikt duft í pústið og svo kveiktum við bara á hjólinu og þá kom duftið út. Við notuðum líka konfettí sprengju til að bæta enn meira upp á stemninguna.“
Það var mikil gleði, líf og fjör þegar Anton gaf í og bleika duftið kom í ljós. Horfðu á myndbandið hér að neðan.