fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fókus

Stjörnubörn ársins 2020

Fókus
Fimmtudaginn 31. desember 2020 10:00

Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þó margir munu hugsa til ársins 2020 sem versta ár aldarinnar, þá var það ekki svart fyrir alla. Það komu fjölmargir gleðigjafar í heiminn sem birtu til veröld foreldra sinna og nákominna.

Hér eru börn þekktra Íslendinga sem komu í heiminn á árinu.

Annie Mist og Frederik

CrossFit-stjarnan Annie Mist Þórisdóttir eignaðist dóttur 10. ágúst með unnusta sínum og CrossFit-kappanum Frederik Aeigidius. Stúlkan fékk nafnið Freyja Mist Aeigidius.

Mynd/Instagram

Hafþór Júlíus og Kelsey

Kraftajötuninn Hafþór Júlíus og eiginkona hans Kelsey Henson eignuðust dreng 26. september síðastliðinn. Drengurinn fékk nafnið Stormur Magni Hafþórsson. Nýlega hitti litla fjölskyldan aðra litla fjölskyldu, þau Annie Mist, Frederik og Freyju Mist, eins og sjá má á myndinni hér að ofan.

Margrét Gnarr Mynd/Hanna

Margrét Gnarr og Ingimar

Einkaþjálfarinn Margrét Edda Gnarr og unnusti hennar Ingimar Elíasson eignuðust son þann 13. janúar. Drengurinn fékk nafnið Elías Dagur Ingimarsson.

Hanna Rún, Nikita og fjölskylda. Mynd/Facebook

Hanna Rún og Nikita

Dansparið Hanna Rún Bazev Óladóttir og Nikita Bazev eignuðust stúlku í byrjun árs, þann 6. janúar. Stúlkan hefði átt að koma í lok árs 2019, en Hanna Rún var gengin rúmlega tvær vikur yfir settan dag. Stúlkan fékk nafnið Kíra Sif Bazev og vakti skírnarveislan mikla athygli fyrir að vera sérstaklega glæsileg og með glimmerþema.

Kristbjörg og Aron. Mynd/Getty

Kristbjörg og Aron Einar

Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson og einkaþjálfarinn Kristbjörg Jónasdóttir buðu sitt þriðja barn velkomið í heiminn 1. október. Fyrir áttu þau tvo syni, þá Óliver og Tristan. Þau vissu ekki kynið fyrir fæðingu og var þetta drengur, hann fékk nafnið Alexander Malmquist Aronsson.

Helga og Bragi. Mynd/Úr myndasafni Torgs

Helga og Bragi

Dagskrárgerðarkonan Helga Arnardóttir og Bragi Þór Hinriksson eignuðust dreng í byrjun árs, þann 2. janúar. Það er því ansi stutt í fyrsta afmælið. Drengurinn fékk nafnið Jakob Örn og var skírður á 17. júní, afmælisdegi móður sinnar.

Blær og Guðmundur. Mynd/Instagram

Þuríður Blær og Guðmundur

Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixson eignuðust son þann 13. júní. Þetta var fyrsta barn parsins og fékk hann nafnið Arnaldur Snær Guðmundsson.

Þuríður Blær er leikkona og meðlimur rappsveitarinnar Daughters of Reykjavík. Hún hefur verið að slá í gegn í vinsælu þáttunum Ráðherran undanfarna mánuði. Guðmundur er vinsæll spunaleikari sem hefur verið að gera það gott með Improv Ísland. Hann er einnig sonur leikarans Felix Bergssonar.

Skúli og Gríma.

Skúli Mogensen og Gríma Björg

Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 6. maí síðastliðinn. Skúli er fyrrverandi forstjóri WOW air og Gríma er innanhúshönnuður. Sonurinn fékk nafnið Jaki Mogensen.

Sólveig og Jakob. Mynd/Instagram

Sólveig og Jakob

Jakob Birgisson grínisti og Sólveig Einarsdóttir hagfræðingur eignuðust dóttur í nóvember sem fékk nafnið Herdís.

Jakob hefur slegið í gegn í skemmtanabransanum um árabil með uppistandi sínu, Meistari Jakob. Hann var einnig einn af höfundum Áramótaskaupsins í fyrra.

Arnór og Vigdís. Mynd/Instagram

Arnór Dan og Vigdís Hlíf

Arnór Dan Arnarsson, söngvari Agent Fresco, og Vigdís Hlíf Jóhönnudóttir eignuðust dóttur þann 17. október síðastliðinn. Stúlkan fékk nafnið Hanna Lillý Arnórsdóttir.

Hermann og Alexandra. Mynd/Instagram

Hermann Hreiðars og Alexandra Fanney

Knattspyrnumaðurinn og þjálfarinn Hermann Hreiðarsson og Alexandra Fanney Jóhannsdóttir eignuðust son þann 16. október síðastliðinn. Rétt rúmu ári áður eignuðust þau annan son, og er því óhætt að segja að það sé fjör á heimilinu.

Fanney Ingvars, Teitur og Kolbrún Anna. Mynd/Instagram

Fanney Ingvars og Teitur

Fyrrverandi fegurðardrottningin og áhrifavaldurinn Fanney Ingvarsdóttir og unnusti hennar Teitur Páll Reynisson eignuðust dreng þann 23. október síðastliðinn. Þau eiga fyrir eina dóttur, Kolbrúnu Önnu.

Kristín og Sverrir.

Sverrir og Kristín

Söngvarinn Sverrir Bergmann og Kristín Eva Geirsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn í febrúar. Stúlkan fékk nafnið Ásta Bertha Bergmann.

Hörður og Móeiður. Mynd/Instagram

Hörður og Móeiður

Landsliðskappinn Hörður Björgvin Magnússon og Móeiður Lárusdóttur eignuðust sitt fyrsta barn í maí, hana Matteuy Móu Harðardóttur.

Steindi og Sigrún.

Steindi og Sigrún

Fjölskylda leikarans Steinþórs Hróa Steinþórsson og Sigrúnar Sigurðardóttur stækkaði í maí. Þau buðu sína aðra dóttur velkomna í heiminn, hana Matthildi Yrsu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Best klæddu stjörnurnar á Met Gala 2024

Best klæddu stjörnurnar á Met Gala 2024
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir þetta vera stórkostlega ofmetið fyrir fitutap – Gerðu þetta í staðinn

Ragnhildur segir þetta vera stórkostlega ofmetið fyrir fitutap – Gerðu þetta í staðinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“