Margt hefur breyst frá svokölluðu gullaldarskeiði Hollywood, 1910 til 1960. Réttindi leikkvenna voru lítil eða engin og viðhorf samfélagsins voru ólík því sem við þekkjum í dag. En það skiptir ekki máli hvaða áratugur er, í Hollywood eru alltaf hneyksli.
MGM í Hollywood var eitt stærsta kvikmyndaver Bandaríkjanna og eins og fram hefur komið voru yfirmenn óhræddir við að gera „það sem þurfti“ til að ná árangri.
Judy Garland er örugglega hvað þekktust fyrir hlutverk sitt sem Dorothy í The Wizard of Oz. Rödd hennar var undurfögur og heillaði alþjóð snemma. Hún byrjaði hjá MGM þegar hún var aðeins þrettán ára. Fljótlega fóru yfirmenn MGM að tala um þyngd hennar og sögðu að hún liti út eins og „feitur lítill grís“. Hún var sett í megrun, og losnaði aldrei undan henni.
Yfirmenn kvikmyndaversins takmörkuðu kaloríufjölda hennar svo svakalega að hún þróaði með sér átröskun. Árið 1938 sagði yfirmaður hjá MGM að hún væri svo feit að hún væri eins og skrímsli, hún var átján ára. Hún fékk aðeins að innbyrða svart kaffi og kjúklingasúpu, reykja 80 sígarettur og taka megrunarpillur til að minnka matarlystina. Á þessum tíma voru þessar pillur daglegt brauð hjá barnastjörnum. Þetta kom í veg fyrir að hún þyngdist en í hvert skipti sem hún fékk að hætta í megrun þá þyngdist hún. Yfirmenn fylgdust vel með henni og öllu því sem hún borðaði eða drakk. Hún varð háð pillunum og glímdi við átröskun allt sitt líf. Hún dó aðeins 47 ára vegna ofskammts af svefnlyfjum árið 1969.
Í gamla daga, sem eru gjarnan kallaðir gullöld Hollywood, voru leikarar og leikkonur eign kvikmyndatökuvera. Eitt af því sem kvikmyndaverin gerðu var að banna kvenkyns stjörnum sínum að giftast eða eignast börn. Ef leikkonurnar urðu óvart óléttar þá neyddust þær til að gangast undir þungunarrof, gegn óskum margra þeirra. Meðal þeirra voru Bette Davis, Joan Crawford, Judy Garland, Tallulah Bankhead, Jeanette McDonald, Lana Turner og Dorothy Dandridge.
Eitt frægasta dæmið er þegar Jean Harlow varð óvænt ólétt og stuttu seinna hafði kvikmyndaverið fengið yfirmann sjúkrahúss til að taka á móti Jean sem átti að „fá smá hvíld“. Hún gekkst undir þungunarrof. Móðir Jean Harlow sagði eftirfarandi um þungunarrof dóttur sinnar: „Barn gat beðið, en ekki ferillinn.“
Ævisöguritarinn Lee Israel skrifaði að leikkonan Tallulah Bankhead hefði gengist undir „þungunarrof eins og aðrar konur fengu sér permanent“.
Ava Gardner gekkst einnig undir þungunarrof á vegum MGM. Rithöfundurinn Jane Ellen Wayne vísaði í Övu Gardner í bókinni The Golden Girls of MGM: „MGM hafði alls konar reglur og refsingar tengdar barneignum. Hefði ég eignast barn þá hefði ég hætt að fá tekjur. Hvernig átti ég þá að lifa?“
Natalie Wood var ein hæfileikaríkasta leikkona sem Hollywood hafði séð. Hún hafði verið tilnefnd þrisvar til Óskarsverðlauna þegar hún var 24 ára. Natalie lék meðal annars í klassísku kvikmyndunum West Side Story og Rebel Without a Cause. Því miður var endi skyndilega bundinn á líf hennar þegar hún var 43 ára. Hún drukknaði í siglingu með eiginmanni sínum, Robert Wagner. Upphaflega var hún talin hafa látist af slysförum. En árið 2011 var dánarorsök hennar breytt eftir að skipstjórinn umrætt kvöld, Dennis Davern, viðurkenndi að hann hefði logið að lögreglu og sleppt því að segja frá rifrildi hjónanna fyrr um kvöldið. Lögreglan breytti dánarorsök hennar í „ekki vitað“ (e. undetermined). Árið 2018 fór systir Natalie, Lana Wood, í viðtal í sjónvarpsþætti Dr. Phil og sagðist telja Robert Wagner hafa orðið systur hennar að bana.
Sagan segir að Joan Crawford hafi leikið í ljósbláu myndinni Velvet Lips áður en hún varð stórstjarna hjá MGM. Kvikmyndaverið á að hafa sent hinn alræmda „fixer“ Eddie Mannix til að finna og eyðileggja filmurnar (e. negatives).
Það fer tvennum sögum um það hvernig Eddie fór að þessu. Önnur sagan segir að hann hafi einfaldlega borgað fjórtán milljónir króna fyrir filmurnar. Hin sagan, sem er jafnframt mun skemmtilegri, segir að mafían hafi hjálpað honum í samningaviðræðum um filmurnar, og hann endað með að borga þrjár og hálfa milljón fyrir filmurnar með því að bjóða valmöguleikana að samþykkja boðið eða vera skotinn.
Sama hvor sagan er sönn þá eru til FBI-skjöl um Joan sem staðfesta tilvist myndarinnar.
Það er ekkert leyndarmál að Elizabeth Taylor gekk nokkrum sinnum í hjónaband, átta samtals. Þó mörg þeirra hafi komist í fréttirnar þá var ekkert jafn umtalað eins og samband hennar og Eddie Fisher. Elizabeth byrjaði með Eddie stuttu eftir að þriðji eiginmaður hennar, leikstjórinn Mike Todd, lést í flugslysi. Það eitt og sér hljómar kannski ekki eins og skandall, en á þessum tíma var Eddie var giftur leikkonunni Debbie Reynolds.
Eddie skildi við Debbie til að giftast Elizabeth Taylor, en eins og aðdáendur stjörnunnar muna þá fór hún frá honum fyrir Richard Burton. Mörgum árum seinna sættust Eddie og Elizabeth og urðu vinir á ný.