Ferðamyndaleik DV lýkur á föstudag, 2. október. Síðustu forvöð að taka þátt.
Íslendingar hafa verið duglegri að ferðast innanlands í sumar en oft áður. Ógrynni fallegra staða er að finna á landinu og vafalaust hafa lesendur DV skapað fjölda verðmætra minninga í sumar. Nú þegar farið er að hausta viljum við sjá það sem fangað hefur augu lesenda.
Það eina sem þú þarft að gera er að senda bestu ferðamynd sumarsins á myndaleikur@dv.is og fylgja dvfrettir á Instagram. Höfundur bestu myndarinnar fær út að borða fyrir tvo á Matarkjallaranum þar sem boðið verður upp á matseðilinn Leyndarmál Matarkjallarans að verðmæti 19,800, ásamt tveimur miðum í Þjóðleikhúsið. Algjör uppskrift að fullkomnu kvöldi í Reykjavík. Auk þess verður sigurvegarinn krýndur ferðaljósmyndari ársins. Flottustu myndunum verður svo deilt á Instagramsíðu DV og birtar á DV.is.
Taktu þátt og sýndu okkur að þú sért ferðaljósmyndari ársins!