Íslenskir tónlistarunnendur fögnuðu 40 ára afmæli plötunnar Ísbjarnarblús í gær. Platan kom út 17. júní 1980 hjá plötuútgáfunni Iðunni. Bubbi segist ekki vera af baki dottnu þó hann sjálfur sé orðinn 63 ára gamall. „Ég er glerharður, 63 ára gamall og ekki deginum eldri!“ segir Bubbi í viðtali við DV. „Ég lít í spegil og sé engan mun á mér nú og fyrir 40 árum síðan.“
Flestir eru sammála um að plata Bubba hafi umturnað íslensku tónlistarlífi. Sagði Arnar Eggert Thoroddsen meðal annars í viðtali við Fréttablaðið í gær að „Bubbi hafði verið að spila á alls kyns uppákomum og vísnavinakvöldum en þarna stígur hann í fyrsta skipti fram á plötu og það með nokkuð afgerandi hætti. […] Þarna heyrir almenningur í fyrsta sinn þessa sterku söngrödd, kynnist þessari náðargáfu hans við að setja saman lög og í textagerð stígur hann ástríðufullur fram og segir hlutina með skýrum og ákveðnum hætti. Eitthvað sem hann hefur gert alla tíð síðan í raun.“ Síðan Ísbjarnarblús hafa komið út yfir 50 plötur undir merkjum Bubba Morthens að meðtöldum safnplötum.
Sjálfur segir hann um Ísbjarnarblús að hún hafi vissulega umturnað íslensku tónlistarlífi. „Þarna voru hlutir sagðir og tónlist spiluð sem menn voru ekkert að gera áður. Það er alveg sama hvort það sé ég eða Arnar Eggerts sem segi það, platan var handsprengja og horft til baka voru áhrifin ótrúleg.“ Spurður hvort hann hafi einhverntímann aftur unnið hjá Ísbirninum var svarið staðfast nei. „Ef við færum boðskapinn yfir á nútímann þá væri ég þarna líklega að syngja um Samherja,“ segir Bubbi. „Ísbjörninn var kannski Samherji þess tíma, tákn um stöðu útgerðarinnar í íslensku samfélagi.“
Ísbjörninn er þó ekki uppáhalds platan hans. „Ég á nóg af uppáhaldsplötum, en engin þeirra er eftir mig. Ég hlusta ekki neitt á sjálfan mig. En ef ég þyrfti að velja uppáhalds plötu þá er það nýjasta platan hverju sinni. Regnbogans stræti kom út í fyrra og það er þá uppáhalds platan mín núna, svo kemur næsta út í ágúst.“
Bubbi segist lítinn tíma hafa til þess að líta um öxl því nóg sé framundan. Undirbúningur sé í fullum gangi að nýrri plötu sem fer í upptöku í byrjun ágúst. „Svo er bók að koma út um mig og söngleikurinn Bubbi verður frumsýnt 13. ágúst,“ segir Bubbi glaðværður um framhaldið og af nógu að taka á næstu misserum.