Kolbrún Pálína Helgadóttir, Jón Haukur Baldvinsson, María Fortescue og Jóel Salómon Hjálmarsson eigendur staðarins.
Mynd: Valli
Í gærkvöldi var opnunarpartý Bubblur og beyglur sem er nýja kaffihúsið í Listasafni Íslands. Mikið er lagt upp úr góður úrvali af kampa- og freyðivíni en einnig er hægt að kaupa klippikort sem gildir sem inneign fyrir 10 glösum.
Að verkefninu standa tvö pör, miklir fagurkerar sem eiga það sameiginlegt að elska góðan og fallega framsettan mat. Þetta eru parið Jón Haukur Baldvinsson og Kolbrún Pálína Helgadóttir, og einnig parið Jóel Salómon Hjálmarsson og María Fortescue. Jóel rak meðal annars Hakkasan í Doha í Katar og Jón Haukur rak Jamie Oliver á íslandi en saman reka þeir veitingastaðinn Níu á Hótel Íslandi í dag