Útvarps- og íþróttakonan Kristín Sif Björgvinsdóttir afhjúpaði nýja kærastann á Instagram fyrir nokkrum klukkustundum.
Hún deildi nokkrum myndum af sér og kærastanum á Instagram og skrifaði með:
„Láttu ævintýrin í lífi þínu vera frábær og gerast oft. Enn betra þegar þú hefur einhvern til að deila þeim með.“
https://www.instagram.com/p/B87rVH0AE9u/
Sá heppni heitir Aaron Kaufman og virðist vera bandarískur út frá Instagram-síðu sinni. Parið er á ferð um Ísland og heimsótti meðal annars Reynisfjöru fyrir nokkrum dögum.
Við óskum parinu innilega til hamingju með hvort annað.