Ingvar E. Sigurðsson er tilnefndur til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason.
Verðlaunin verða veitt í Berlín þann 7. desember. Ingvar er tilnefndur í flokki leikara í aðalhlutverki og með honum eru tilnefndir stórleikarinn Antonia Banderas fyrir hlutverk sitt í Pain and Glory, Jean Dujardin fyrir An officer and a spy, Pierfrancesco Favino fyrir leik sinn í The Traitor, Levan Gelbakhiani í And Then We Danced og Alexander Scheer fyrir Gundermann.
Ingvar hefur hlotið nær einróma lof gagnrýnenda fyrir leik sinn og hefur þegar unnið til þrenna verðlauna, Rising star verðlaunanna á Cannes hátíðinni, besti leikari í aðalhlutverki á kvikmyndahátíðinni í Transilvaíu og á hátíðinni Festival du nouveau conema í Kanada.
Hann hefur áður verið tilnefndur til sömu verðlauna, þá árið 2000 fyrir leik sinn í Englum Alheimsins eftir Friðrik Þór Friðriksson. Eini Íslendingurinn til að hljóta verðlaunin á evrópsku kvikmyndahátíðinni til þessa er söngkonan Björg Guðmundsdóttir fyrir hlutverk sitt í söngvamynd Lars Von Trier, Danver in the Dark.