Athafnakonan, áhrifavaldurinn og framtíðar dansdrottningin Manuela Ósk Harðardóttir birti hreyfimynd á Instagram fyrir skemmstu.
Á myndinni er Manuela með eina höndina í hárinu og það sést vel í undirbrjóst hennar. Samfélagsmiðladrottningin veit alveg hvað hún er að gera og skrifar með myndinni: „Tæpa týpan sem þið voruð að bíða eftir.“
https://www.instagram.com/p/B5XqxA9hkkw/
Það er aðeins hálftími síðan Manuela birti hreyfimyndina en hafa þegar yfir 1200 manns séð hana og rúmlega 110 manns líkað hana.
Manuela er einn keppanda í Allir geta dansað á Stöð 2. Fyrsti þátturinn fer í loftið 28. nóvember næstkomandi.