fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Floni er einn efnilegasti rappari landsins: „Mér finnst vanta fleiri stelpur í rappsenuna“

Guðni Einarsson
Mánudaginn 3. september 2018 12:00

Flóni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Floni, er einn efnilegasti rappari landsins. Hann gaf út sína fyrstu plötu undir heitinu „Floni“ í lok árs 2017. Platan sló samstundis í gegn og röðuðu níu lög af plötunni sér í níu efstu sætin á lista Spotify yfir þau lög sem mest eru spiluð á streymisveitunni á Íslandi. Í júní kom út lagið „Party“ sem fór rakleiðis á topplista og það sama má segja um lagið „OMG“ sem kom út núna í lok júlí.

Vinsældir Flona hafa vaxið dag frá degi meðal íslenskra hip-hopunnenda og er beðið eftir að kappinn gefi út meira efni.

Hvernig og hvenær byrjaðir þú í tónlist?

Ég byrjaði fyrir um það bil tveimur árum að læra á forritið „Logic pro“ eftir að ég hafði fylgst með Arnari Inga (Young Nazareth). Í kjölfarið fór ég aðeins að grúska í tónlistinni og það hefur undið upp á sig. Síðan voru bestu vinir mínir, Jökull Breki og Viktor Örn Ásgeirsson, mikið í tónlist og við fórum að vinna ómeðvitað að þessari plötu.

Varstu mikið í kringum tónlist þegar þú varst yngri?

Já, ég hef alltaf verið mikið í kringum tónlist, ég byrjaði ungur að læra á fiðlu og píanó og ætli ég hafi ekki fengið þetta þaðan.

Hvað er það sem þú fílar mest við hip-hop?

Það er ekkert sérstakt í rauninni við hip-hop sem ég fíla. Það er bara eitthvað við tónlist yfir höfuð sem heillar mig.

Hvernig finnst þér hip-hopsenan í dag, eitthvað sem mætti fara betur?

Það hefur verið gaman að sjá hvað það eru margir ungir krakkar að gera tónlist í dag og það verður gaman að fylgjast með þeim þróast á næstu árum. Það væri gaman að sjá fleiri stelpur gefa út músík, það er svo mikið af hæfileikaríku tónlistarfólki hérna heima.

Hvað finnst þér skemmtilegast að rappa um?

Það er í rauninni ekkert eitt sem mér finnst gaman að rappa um. Ég reyni að skrifa textana eftir líðan og hvernig mér líður einmitt þá.

 Vinnur þú með þema?

Nei, í rauninni ekki, ég vinn bara svolítið eftir tilfinningunni og hvernig mér líður. Vil ekki vera að festa mig inni í eitthverjum kassa. Vil leyfa sköpuninni bara svolítið að tala sjálf og fólki að skynja hvað það er sem ég er að rappa um.

Þú gafst út plötuna Floni á síðasta ári sem sló í gegn. Segðu okkur aðeins frá því?

Þetta var langt og krefjandi ferðalag þar sem ég lærði mikið, en á sama tíma mjög skemmtilegt.

Þú gafst nýverið út lögin Party og OMG, hvernig hafa viðtökurnar verið?

Mér hafa þótt viðtökurnar góðar að flestu leyti. Það er gaman að gefa út svona partílög á sumrin.

Hver er þín fyrirmynd í senunni og af hverju? Það er í rauninni enginn einn, maður fær innblástur úr alls konar stefnum og ég reyni bara að skapa það sem ég get úr því. Ég fæ sjálfur innblásturinn í daglegu lífi og fólkinu í kringum mig.

Hefur þú lent í einhverjum skrítnum uppákomum þegar þú hefur komið fram?

Já, maður hefur lent í alls kyns uppákomum, t.d. að hljóðneminn virki ekki og að ég þurfi að öskra af sviðinu. Þá hef ég lent í því að  krakkar ryðjist inn á sviðið og byrji að hoppa út í áhorfendaskarann.

Floni byrjaði að fikta við tónlist fyrir um tveimur árum og hlutirnir hafa gerst hratt síðan.

Hverjir eru helstu aðdáendur þínir?

Ég verð var við að aðdáendurnir eru á öllum aldri, fullorðið fólk og alveg niður í unglingadeildir grunnskólanna.

Hvernig er vinnuferlið hjá þér þegar kemur að því að semja?

Bara setja sig í rétta hugarástandið, prófa sig áfram og ekki vera hræddur. Það er mikilvægt að treysta á sjálfan sig og ekki pæla í öðrum. Það getur stundum verið erfitt, sérstaklega þegar það er pressa á þér.

Finnst þér vanta fleiri kvenkyns rappara í senuna?

Já. Mér finnst vanta fleiri stelpur í rappsenuna. Ég þekki svo margar hæfileikaríkar stelpur sem eiga tónlistina alveg fyrir sér. Gott dæmi er Guðrún Ýr, sem er þekkt sem GDRN. Við gerðum lag saman og hún gaf nýlega út plötu, ég mæli með að allir fari og tékki á henni.

Þú hefur verið að spila mikið undafarið ár, eitthvert gigg sem stendur upp úr?

Nei, það kemur ekkert upp í hugann. Markmið mitt er að reyna komast út til hinna Norðurlandanna. Spila í Danmörku, Noregi eða Svíðþjóð. Það væri draumurinn.

 Hvað er næst á sjóndeildarhringnum hjá þér?

 Kemur í ljós …

Floni kom fram í beinni útsendingu síðastliðinn föstudag í DV Tónlist og geta áhugasamir séð upptökuna á vef DV.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki