„Það er búið að taka mig meira en mánuð að skrifa þetta, en ef að andlát hennar getur orðið til þess að forða öðrum frá því að upplifa þennan harmleik, þá verður það þess virði að láta á reyna,“ ritar Bandaríkjamaðurinn Jeff Gober í átakanlegri færslu á facebook. Dóttir hans var aðeins þriggja vikna gömul þegar hún lést af völdum herpes veirusýkingar. Jeff biðlar til fólks að gæta ítrasta hreinlætis nálægt ungabörnum. Það hefði getað bjargað lífi dóttur hans.
Mallory, dóttir Jeff fæddist alheilbrigð en byrjaði að fá háan hita þegar hún var einungis nokkurra daga gömul. Ekki leið á löngu þar til blöðrur byrjuðu að myndast á líkama hennar, og ljóst var að hún var komin með lífshættulega sýkingu. Hún lifði í aðeins tvær vikur í viðbót.
Sýkingin sem Mallory litla fékk var völdum algengustu gerðarinnar af herpesveitunni (herpes simplex virus 1) en um er að ræða sama vírus og veldur frunsum og kynfæraáblæstri Alþekkt er að vírus smitast til fólks snemma á lífsleiðinni en getur legið í dvala árum saman. Sumir hafa því enga hugmynd um að þeir séu með vírusinn, þar sem þeir fá aldrei nein einkenni.
„Jafnvel þó svo að þú sért ekki með frunsu þá getur þú samt verið smitberi,“ ritar hann á öðrum stað í færslunni.
Ungabörn eru einstaklega viðkvæm fyrir sýkingunni enda er ónæmiskerfi þeirra ekki fullþroskað.
Jeff segir að engin af þeim sem komust í snertingu við dóttur hans hafi verið með sýnilega frunsu og brýnir enn og aftur fyrir fólki að gæta ítrasta hreinlætis nálægt nýfæddum börnum.
„Mallory var stöðugt að með hendurnar í andlitinu á sér og var alltaf að sjúga á sér fingurna, þannig að það er næstum öruggt að hendurnar á henni komust í snertingu við vírusinn á einhverjum tímapunkti,“ ritar hann.
„Ef þú átt ungabarn, eða ert að fara að vera nálægt ungabarni, þvoðu þér þá um hendurnar. Stöðugt.
Ef einhver vill fá að halda á litla barninu þínu, sjáðu til þess að viðkomandi þvoi sér um hendurnar. Og láttu hann eða hana svo gera það aftur.“