fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025

Hvert fara peningarnir?

Ritstjórn DV
Laugardaginn 12. október 2019 15:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á tjaldsvæðinu í Laugardal hefur hópur fólks neyðst til að búa í húsbílum og hjólhýsum vegna hás leiguverðs og íbúðaskorts á höfuðborgarsvæðinu. Tjaldstæðin sem ætluð eru til langtímaleigu eru afmörkuð og aðskilin frá því svæði sem er ætlað ferðamönnum.

Sjá einnig: Ófremdarástand í Laugardal – Samfarir á salerninu og óþrifnaður: „Oft stimpluð sem hyskið í dalnum“

Nýverið tók gildi samningur um að íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur sæi um rekstur langtímasvæðisins en Farfuglar ses., sem hefur undanfarin ár annast rekstur tjaldsvæðisins, heldur áfram rekstri ferðamannasvæðisins. Hermt er að umrætt tjaldsvæði sé stöðugt stappfullt af ferðamönnum á sumrin en jafnframt er nóg um að vera á veturna þegar ferðafólk vill ódýrari flugmiða en tryggja það að norðurljósaskoðun sé inni í myndinni.

Mánaðarleiga hvers leigutaka í langtímaleigu er í kringum 60 þúsund og eru aldrei færri en tíu slíkir leigjendur á svæðinu yfir veturinn. Þar reiknast ekki einu sinni með gjald maka. Í ljósi undanfarinna frétta af gæsluleysi, skemmdarverkum af völdum gesta og gangandi, svo ekki sé talað um ógeðfelldar aðstöðu snyrtingar, verður að spyrja sig hvað hefur orðið um féð. Þegar gistiheimilið sá um reksturinn fóru peningarnir ekki í neitt af ofannefndu og varla er þetta vegna rafmagnskostnaðar. Hvert fóru þeir þá?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Rooney þátturinn að hefjast

Rooney þátturinn að hefjast
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Þetta gæti verið ástæðan fyrir að þú sofnar alltaf í sófanum

Þetta gæti verið ástæðan fyrir að þú sofnar alltaf í sófanum
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Eru hótelherbergi alltaf jafn hrein og fullyrt er? Hvað segja hótelstarfsmenn?

Eru hótelherbergi alltaf jafn hrein og fullyrt er? Hvað segja hótelstarfsmenn?