Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, gerði sitt besta til að halda athygli landans í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi síðastliðið miðvikudagskvöld.
Líkt og vera ber skaut hann föstum skotum á ríkisstjórnina.
Fyrir þá sem voru ekki búnir að skipta um stöð vakti það athygli að Logi talaði óvenju mikið um mat í ræðu sinni. Sagði hann í einni myndlíkingu að roastbeef, graflax, lamb, rauðkál, rækjuhlaup með brúnni sósu, saman á diski, væri ekki í áhugavert í sjálfu sér.
Líkti hann svo ríkisstjórnarsamstarfi Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks við rétt þar sem hrogn og súkkulaði sé uppistaðan.
Vildi Logi án efa meina að þessi tvö hráefni ættu ekki vel saman. Staðreyndin er reyndar sú að það hefur lengi tíðkast að blanda saman kavíar og súkkulaði og hefur það meira að segja verið vísindalega rannsakað hvers vegna þessi hráefnin passa svona vel saman.
Spurning hvort Logi þurfi að eyða meiri tíma í eldhúsinu.