fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Guðni þarf ekki að leiðbeina forsætisráðherra – hann skipar ekki lengur fyrir

Eyjan
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Ágústsson, Framsóknarmaður og fyrrverandi landbúnaðarráðherra, birti yfirlætisfulla grein í Morgunblaði gærdagsins þar sem hann taldi sig þess umkominn að setja ofan í við forsætisráðherra og væna Kristrúnu Frostadóttur um svik vegna þess að hún hefur aðrar skoðanir á Evrópumálum en Guðni og aðrir einangrunarsinnar í Heimsýn. Vonandi hefur öldungurinn Guðni ekki verið sofnaður þegar Silfrið á RÚV birti ítarlegt viðtal við forsætisráðherra í gær þar sem margt kom fram og þar á meðal skilmerkilegar skýringar á öllu því sem Guðni reyndi að gera tortryggilegt í blaðagrein sinni í gær. Hann hefði alla vega haft gott af því að hlusta. Hafi Guðni hlustað en ekki skilið málflutning forsætisráðherra hlýtur einhver að geta farið yfir viðtalið með honum en Kristrún gerða glögga grein fyrir mikilvægum málum.

Orðið á götunni er að það sé orðið grátlegt að fylgjast með föstum og virkum greinahöfundum sem birtast reglubundið á prenti í Morgunblaðinu. Flestir eru þeir fyrrverandi eitt og annað. Guðni Ágústsson er einn þeirra og boðar jafnan einangrunarstefnu eins og flestir hinna. Meðal þeirra eru: Ögmundur Jónasson, Björn Bjarnason, Diljá Mist Einarsdóttir, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hjörtur Guðmundsson og Kjartan Magnússon – að ógleymdum sjálfum höfuðpaurnum sem birtir nafnlaus Reykjavíkurbréf, Staksteina og stöku leiðara, þá sem eru sérstaklega rætnir. Í skrifum þess síðastnefnda er yfirleitt fjallað mjög illa um alla nema Trump og Pútin en aðdáunin á þeim tveimur leynir sér ekki.

Í grein sinni vænir Guðni forsætisráðherra um svik. Hann heldur því fram að hún hafi fyrir síðustu kosningar gefið fortakslaus loforð um að „ESB væri ekki á dagskrá.“ Þetta er rangt. Hún lýsti þessu á skýran hátt í Silfrinu í gær. Hún rakti hvernig forgangsmál hefðu verið unnin hratt og vel á fyrsta ári núverandi ríkisstjórnar og nú væri einfaldlega komið að því að bjóða þjóðinni upp á að kjósa um framhald Evrópumála því að þessi ríkisstjórn treystir þjóðinni en hræðist hana ekki.

Guðni heldur því fram að Samfylkingin hafi fengið fína kosningu í nóvember 2024 vegna þess að hún lagði ekki áherslu á framgang ESB mála. Varla er þetta trúverðugt mat þegar litið er til þess að Framsóknarflokkur Guðna dró þá enga fjöður yfir það að hann væri alfarið á móti öllum ESB-tilburðum. Framsókn talaði skýrt á móti ESB en með einangrunarstefnu. Flokkurinn tapaði átta þingsætum í kosningunum, kom til þings með einungis fimm þingmenn og varð að sætta sig við lélegasta árangur sinn í meira en hundrað ára sögu flokksins! Þrír sitjandi ráðherrar flokksins í vinstri stjórn Katrínar Jakobsdóttur féllu í kosningunum þannig að nú hefur flokkur Guðna engan þingmann í Reykjavík og í Suðvestur kjördæmi þar sem 70 prósent kjósenda býr.

Orðið á götunni er að skrif flestra þeirra sem fyrr eru taldir hér að framan gangi nú út á meintan ófrið og átök milli ríkisstjórnarflokkanna og innan þeirra. Þetta er einnig rangt og einkennist af óskhyggju og hreinni afbrýðisemi þeirra sem hafa ekki enn þá sætt sig við þá lýðræðislegu staðreynd að þeim var hafnað í kosningum fyrir rúmu einu ári og sitja nú nöldrandi í valdalausri stjórnarandstöðu á Alþingi. Þetta gildir um valdaflokkana Framsókn og Sjálfstæðisflokkinn, helmingaskiptaflokkana, sem hafa ráði ríkjum að mestu á Íslandi frá stofnun lýðveldis árið 1944.

Tal Guðna Ágústssonar um „afsal fullveldis,“ að Íslendingar myndu sjá á eftir landbúnaði sínum og fiskimiðum og að „skipt yrði á evru og atvinnuleysi“ er órökstutt rugl. Dettur Guðna Ágústssyni virkilega í hug að þær 27 þjóðir – smáar og stórar – sem hafa valið að taka þátt í ESB samstarfi séu allar svo heimskar að þær hafi gengið „inn í brennandi hús,“ gagngert til að láta traðka á sér? Er hann að halda því fram að dvergþjóðin Ísland sé öllum öðrum fremri og snjallari með því að halda sér fyrir utan og una við örmyntina íslenska krónu til frambúðar? Það bar aðeins á þessu galna viðhorfi í aðdraganda hrunsins 2008 þegar forseti lýðveldisins gaf tóninn með frægum ummælum: You ain‘t seen nothin‘ yet ………….. Og svo fór allt á hausinn.

Mörg smáríki hafa valið að ganga í ESB og una hag sínum þar vel án þess að vera haldin minnimáttarkennd sem brýst út í mikilmennskubrjálæði sem stundum hefur truflað Íslendinga.

Orðið á götunni er að Guðni Ágústsson og einangrunarsinnarnir í liði hans verði brátt að skilja moldarkofahugsunarháttinn við sig og horfa fram á veginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins