
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður verkalýðsfélagsins Eflingar, fór mikinn á Facebook í vikunni og hneykslaðist á launum borgarstjórans í Reykjavík, en laun borgarstjóra, að viðbættum föstum starfskostnaði, nema rétt tæpum þremur milljónum króna á mánuði.
Þetta segir Sólveig Anna vera sturlun og ekki sé að furða þótt „ekkert gangi að hemja launaskrið og ná niður verðbólgu – pólitísk yfirstétt fer á undan með ömurlegu fordæmi og skammtar sér milljónir eins og ekkert sé á meðan hún ræður ekki einu sinni við að tryggja sómasamlega grunnþjónustu – hvaða hvata hefur þessi yfirstétt til þess að sýna ráðdeild – bókstaflega enga, fær að komast upp með hvað sem er – enda á ráðdeildin aðeins að vera hjá láglaunafólkinu sem starfar í fjársveltum umönnunarkerfunum sem enginn þykist bera ábyrgð á.“
Orðið á götunni er að þarna hafi Sólveig Anna tekið stórt upp í sig og henni væri mögulega hollt að setja hlutina í rétt samhengi áður en hún byrjar að hneykslast. Vissulega er það rétt að enginn er vanhaldinn af tæplega þriggja milljóna mánaðarlaunum en þegar horft er til þess að borgarstjóri er í raun forstjóri stærsta fyrirtækis landsins, vegna þess að hjá Reykjavíkurborg starfa 11 þúsund manns, blasir við að laun borgarstjóra eru varla nein sturlun. Einnig þegar horft er til þess að sveitarstjórar og bæjarstjórar í sveitarfélögum sem eru bara brot af stærð Reykjavíkur eru margir hverjir með sambærileg laun. Forstjórar fyrirtækja í kauphöllinni eru jafnan með mun hærri laun en borgarstjóri.
Í fjármálakerfinu eru heilu hæðirnar í háhýsum fullar af hvers kyns millistjórnendum sem eru á sömu launum og hærri en borgarstjóri. Verslunarstjóri Costco á Íslandi er með margföld laun borgarstjóra, svo dæmi sé tekið. Hvar er þá „sturlunin“ í launakjörum borgarstjóra?
Orðið á götunni er að Sólveig Anna mætti líta sér nær þegar hún velur að kalla laun tiltekinna einstaklinga „sturlun“ og gæti t.d. beint sjónum sínum að verkalýðshreyfingunni. Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, var með 2,5 milljónir á mánuði samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar í fyrra – sem birtir tekjur árið 2024. Það jafngildir um 2,8 milljónum í dag, en óhætt er að bæta við u.þ.b. 12% vegna hækkunar launa síðan 2024.
Laun borgarstjóra eru laun hans í dag en ekki árið 2024.
Orðið á götunni er að ef Sólveig Anna liti bara í kringum sig á skrifstofum Eflingar gæti hún fundið dæmi um mun meiri „sturlun“ en á skrifstofu borgarstjóra. Samkvæmt tekjublaðinu var Stefán Ólafsson, sérfræðingur hjá Eflingu, með 3,3 milljónir á mánuði árið 2024. Það jafngildir í dag u.þ.b. 3,7 milljóna mánaðarlaunum.
Orðið á götunni er að Sólveig Anna hefði hæglega getað fundið sér betri dæmi um „sturluð“ launakjör en laun borgarstjórans í Reykjavík.