Nokkra athygli vakti í morgun þegar Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins mætti í viðtal við Helga Seljan í þættinum Morgunglugginn á Rás 1. Guðlaugur Þór hefur eins og fleiri þingmenn stjórnarandstöðunnar fullyrt undanfarna daga að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu(ESB) hefði verið formlega afturkölluð og geti því ekki talist virk. Hann kom hins vegar af fjöllum þegar Helgi spurði hann út í skýrslu sem unnin var í tíð Guðlaugs Þórs sem utanríkisráðherra. Skýrslan var aldrei birt opinberlega en niðurstaða í lokadrögum hennar er að umsóknin sé enn virk en Guðlaugur Þór sagðist ekki muna eftir skýrslunni, þótt hann hefðu sjálfur ritað formála að lokadrögunum. Össur Skarphéðinsson, fyrrum þingmaður, ráðherra og formaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir Guðlaug Þór harðlega fyrir framgöngu sína og segir að sjaldan hafi stjórnmálamaður verið tekinn jafn hressilega til bæna. Segir Össur það ljóst að Guðlaugur Þór hafi vísvitandi farið með rangt mál um stöðu aðildarumsóknarinnar.
Helgi Seljan kom Guðlaugi í opna skjöldu – Ber við minnisleysi um sína eigin skýrslu
Össur var utanríkisráðherra þegar umsókn um aðild Íslands að ESB var lögð fram, í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sem sat við stjórnvölinn á árunum 2009-2013.
Ríkisstjórnin sem tók við eftir kosningar 2013 ákvað að halda ekki áfram með aðvildarviðræðurnar við ESB en fullyrðingar Ursula von der Leyen forseta framvæmdastjórnar sambandsins um að umsókn Íslands sé enn virk hafa vakið óánægju stjórnarandstöðunnar, þar á meðal Guðlaugs Þórs sem virðist þó, miðað við lokadrög áðurnefndrar skýrslu, hafa áður komist að sams konar niðurstöðu og forseti framkvæmdastjórnarinnar. Össur skrifar um vital Helga Seljan við Guðlaug Þór í pistli á Facebook:
„Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega og Guðlaugur Þór …. vegna ítrekaðra staðhæfinga hans um að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu hafi verið afturkölluð af ríkisstjórnum, sem hann átti sæti í.“
Össur vísar í fullyrðingar Guðlaugs Þórs um að orð Ursula von der Leyen um stöðu aðildarumsóknar Íslands hafi komið sér rækilega á óvart. Ljóst sé að Guðlaugur Þór hafi verið að tala gegn betri vitund:
„Hann hefur gengið svo langt að segja að þessari afstöðu ESB hafi verið haldið leyndri fyrir sér og Íslendingum. Út úr þessu sauð hann nýlega þá samsæriskenningu að heimsókn Úrsúlu hafi verið úthugsað plott af hálfu hennar, Kristrúnar Frostadóttur og Þorgerðar Katrínar til að skapa farveg fyrir hraðferð Íslands í ESB í krafti þess að umsóknin frá 2009 sé formlega í gildi. Í öllum þessum efnum talar Guðlaugur Þór gegn betri vitund.“
Össur segir viðtal Helga Seljan við Guðlaug Þór og lokadrög skýrslunnar sem aldrei var birt sýna fram á þetta:
„Málflutningur hans var bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu og ráðherrann rassskelltur með niðurstöðum skýrslu sem hann lét sjálfur skrifa árið 2018. Meginniðurstaða skýrslunnar er í stuttu máli að umsókn Íslands um aðild að ESB hafi aldrei verið afturkölluð. Um þetta er komist fast að orði en einn kaflinn heitir beinlínis: „Aðildarviðræðunum var ekki formlega slitið.“ Þar með er það í gadda slegið og þarf ekki frekari umræðu.“
Össur vísar í þá niðurstöðu sem fram kemur í lokadrögum skýrslunnar að allt frá upphafi þess að ríkisstjórnin, sem tók við völdum 2013, ákvað að halda aðildarviðræðunum ekki áfram hafi legið fyrir sú afstaða ESB að þeim hefði ekki verið formlega slitið og umsóknin þar með ekki afturkölluð. Það hafi komið fram þegar eftirmaður Össurar í utanríkisráðuneytinu Gunnar Bragi Sveinsson hafi sent bréf þess efnis en Össur kallar það hið „fræga kjánabréf“. Því hafi verið komið skýrt á framfæri að ESB liti svo á að gert hefði verið hlé á viðræðunum enda hafi það orð verið notað í bréfi Gunnars Braga.
Össur segir því ljóst að ekki standi steinn yfir steini í þeim málflutningi sem Guðlaugur Þór hefur viðhaft undanfarið:
„Varnir ráðherrans í morgunútvarpinu gegn upplýsingum úr hans eigin skýrslu voru í senn dæmalausar og sérlega ótrúverðugar. Guðlaugur Þór, sem þekktur er fyrir minni fílsins, bar nú við minnisleysi og sagðist ekkert muna eftir skýrslunni, og alls ekki eftir formálanum þar sem hann staðfesti þó skýrsluna með formlegri undirskrift sinni. Orð hans var ekki hægt að skilja öðru vísi en svo að vammi firrtir forystumenn ráðuneytisins hefðu tekið undirskrift hans ófrjálsri hendi – og í reynd skellt henni undir án þess að spyrja hann!“
Össur segir þetta ekki geta verið þar sem Guðlaugur Þór hafi aldrei nokkurn tímann á sínum stjórnmálaferli látið embættismenn spila með sig:
„Kommon, Guðlaugur Þór hefur aldrei verið tuskudúkka embættismanna eins og sumir ráðherrar heldur einn af umsvifamestu stjórnmálamönnum um langa hríð. Er það trúverðugt að hann hafi verið slík léttavigt í sínu eigin ráðuneyti að embættismenn þar hafi valsað um með undirskrift hans, og sett án leyfis undir lokadrög texta sem birta átti í hans eigin nafni? Þetta stenst einfaldlega ekki skoðun.“
Guðlaugur Þór hafi vitað full vel að umsóknin um aðild hafi verið virk allt frá því að hlé var gert á viðræðunum en hafi haldið öðru fram af því það hentaði honum:
„Samsæriskenning Guðlaugs Þórs um plott Úrsúlu von der Leyen, Kristrúnar og Þorgerðar er því úr lausu lofti gripin, og virðist meðvitaður uppspuni hjá Guðlaugi Þór. Meginniðurstaða skýrslunnar um að umsóknin væri enn formlega í gildi hentaði hins vegar ekki málflutningi Guðlaugs Þórs, þó sönn væri. Þess vegna lét hann stinga henni undir stól.“
Í umræðum í athugasemdakerfinu gengur Össur enn lengra í gagnrýni sinni á Guðlaug Þór:
„Engir – og alls ekki stjórnmálamenn – eiga að komast upp með samsærisspuna gegn betri vitund … Áminning um frumatriði í mannlegum samskiptum innrætt í biblíuskólanum í gamló: Við eigum ekki að ljúga.“