fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Eyjan

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Eyjan
Föstudaginn 20. júní 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gallup hefur birt stóra könnun um fylgi flokka í Reykjavík. Um tvö þúsund svör liggja að baki könnuninni og því verður hún að teljast marktæk eins og staðan er núna. Margvísleg tíðindi má lesa úr þessari könnun og þetta helst: Framsóknarflokkurinn fengi þriggja prósenta fylgi og engan mann kjörinn af 23 borgarfulltrúum. Flokkurinn fékk fjóra menn kjörna í síðustu kosningum, öllum að óvörum. Einar Þorsteinsson, oddviti flokksins hefur haldið þannig á sigri flokksins að fylgið er horfið og staða flokksins komin á núll að nýju. Samfylkingin er í sókn, fengi 26 prósent og sjö menn kjörna, Sjálfstæðisflokkurinn fengi 31 prósenta fylgi og næði átta mönnum. Viðreisn tvöfaldar fylgi sitt frá kosningum og fengi nú tvo menn kjörna. Núverandi borgarstjórnarmeirihluti héldi velli með 12 borgarfulltrúa.

Orðið á götunni er að niðurstaða þessarar könnunar hljóti að vera mikil vonbrigði fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem hefur haldið að hann fengi byr í seglin eftir að Einar Þorsteinsson plottaði yfir sig og klúðraði meirihluta sem féll. Nýr meirihluti var myndaður til vinstri en það virðist ekki hafa mikil áhrif. Sjálfstæðisflokkurinn fær 31 prósent sem er hið sama og Eyþór Arnalds náði í kosningunum 2018. Síðan tók Hildur Björnsdóttir við leiðtogahlutverkinu og missti tvo borgarfulltrúa fyrir borð. Niðurstaðan er einnig afhroð fyrir Framsóknarflokkinn og Einar Þorsteinsson. Hann geldur nú klaufaskapar síns og einnig þess hvernig flokkurinn virðist vera að hrynja á landsvísu. Þrátt fyrir það hreyfir Sigurður Ingi Jóhannsson sig ekki úr formannsstólnum og gæti það haft verulega áhrif í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor.

Framsóknarflokkurinn komst í lykilstöðu í Reykjavík eftir síðustu kosningar en hefur nú spilað þeirri stöðu út úr höndum sér. Flokkurinn hefur einnig verið í oddaaðstöðu í Hafnarfirði og Kópavogi og tryggt þar Sjálfstæðisflokknum stöður bæjarstjóra. Ef fram haldur sem horfir verður sú staða ekki upp á teningnum næst. Þá er viðbúið að Sjálfstæðisflokkurinn komist þar ekki í meirihlutastöðu sem yrði mikið áfall. Framsókn er einnig í meirihlutasamstarfi á Akureyri, með tvo fulltrúa af 11. Flokkurinn gæti því fallið út úr forystuhlutverkum í fjórum fjölmennustu sveitarfélögum landsins og valdið félögum sínum í Sjálfstæðisflokknum valdatapi í leiðinni.

Orðið á götunni er að innan Sjálfstæðisflokksins sé þegar orðinn mikill skjálfti vegna sveitarstjórnarkosninganna í maí á næsta ári. Tíminn flýgur og eftir hálft ár þarf að leggja drög að kosningabaráttu og uppröðunum á lista. Hildur Björnsdóttir er staðráðin í að reyna áfram og leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þó svo hún hafi ekki náð áþreifanlegum árangri enn sem komið er. Innan flokksins eru háværar raddir sem vilja utanaðkomandi „sterkan“ leiðtoga til að leiða án þess að líkleg nöfn hafi verið nefnd. Lengi var talað um Guðlaug Þór Þórðarson, þingmann og fyrrverandi ráðherra. Nú er talið að honum hugnist þetta ekki enda geri hann sér grein fyrir því að aðkoma hans myndi engu breyta. Guðlaugur Þór þarf ekki að leggja langan og merkan stjórnmálaferil sinn á vogarskálar árið sem hann verður sextugur. Hann er hreinlega vaxinn upp úr þessu.

Auk þess vefst það fyrir öllum að benda á „sterkan“ mann í Sjálfstæðisflokknum sem gæti hentað til þessara verka eða annarra. Allt bendir því til þess að Hildur Björnsdóttir leiði lista flokksins í Reykjavík næsta vor með fulltingi þeirra sem hafa myndað valdalausan minnihluta með henni síðustu þrjú árin. Þetta eru Kjartan Magnússon, Mörtu Guðjónsdóttur og Friðjón Friðjónsson. Ekki verður á betra kosið – segja pólitískir andstæðingar flokksins!

Verði niðurstaða kosninga í Reykjavík næsta vor í samræmi við þessa nýju könnun Gallups má búast við meirihluta núverandi ríkisstjórnarflokka sem næðu samtals 10 borgarfulltrúum og fengju svo tvo til viðbótar til liðs við sig.

Orðið á götunni að ekki sjái fyrir endann á eyðimerkurgöngu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stefán segir Jóhanni Páli til syndanna – „Umhverfisráðherra ber sér á brjóst“

Stefán segir Jóhanni Páli til syndanna – „Umhverfisráðherra ber sér á brjóst“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Froðusnakkar, orð að sönnu – stjórnarandstaðan velur sér nafn

Svarthöfði skrifar: Froðusnakkar, orð að sönnu – stjórnarandstaðan velur sér nafn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Svandís þarf ekki að leita langt yfir skammt að samstarfsaðila

Orðið á götunni: Svandís þarf ekki að leita langt yfir skammt að samstarfsaðila
Eyjan
Fyrir 1 viku

Athugasemd frá VR vegna umfjöllunar Orðsins á götunni um launakjör verkalýðsforstjóra

Athugasemd frá VR vegna umfjöllunar Orðsins á götunni um launakjör verkalýðsforstjóra