fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Eyjan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Það erfiðasta við ræðulist

Eyjan
Fimmtudaginn 19. júní 2025 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhvers staðar las ég að það erfiðasta við ræðulist væri að þagna á réttum tíma.

Um þennan þröskuld hafa margir fallið, sem kjörnir hafa verið til þess að tala á Alþingi. Sjálfur er ég ekki undanskilinn.

En ég hygg að fá dæmi séu um, eins og að undanförnu, að jafn margir þingmenn hafi í jafn mörgum ræðum á jafn stuttum tíma sýnt kjósendum að þeir hafi í hita leiksins misst alla tilfinningu fyrir þessu jafnvægi í ræðulistinni.

Saga um þá sjálfa

Eitt er að kunna ekki að þagna á réttum tíma. Hitt er að skilja ekki hvað í því felst.

Þingmenn Miðflokksins og hinna stjórnarandstöðuflokkanna tveggja hafa títt verið kallaðir í fréttaviðtöl til þess að skýra málþófið fyrir landsmönnum.

Með hæfilegri einföldun má segja að skýring þeirra sé þessi: Eftir því sem við tölum lengur sannar það að ríkisstjórnin hafi misst tökin á viðfangsefnum sínum!

Hvað sem þessi speki er endurtekin oft hygg ég að flestir landsmenn hallist þó eftir sem áður að hinu að ræðulistin sé fremur fólgin í því að kunna að þagna á réttum tíma.

Sem sagt: Þegar menn missa stjórn á mælgi sinni segir það bara sögu um þá sjálfa en ekki aðra.

Samúð

Þingsköp gera ráð fyrir því að unnt sé að stöðva umræður með samþykki meirihluta þingmanna. Þessi heimild er hér um bil ónotuð.

Ýmsar ástæður eru fyrir því. Ein er sú að málþóf, sem gengur út yfir allan þjófabálk, býr jafnan til samkennd með ríkisstjórn hverju sinni.

Flestar ríkisstjórnir hafa litið svo á að þessi samkennd gæti snúist við sé þetta meðal notað.

Málþófið núna sýnist til að mynda hafa styrkt ímynd ríkisstjórnarinnar.

Ofbeldi

Í þessu samhengi er rétt að hafa í huga að starfstími Alþingis er takmarkaður eins og allra annarra.

Þar af leiðir að þeir sem stunda málþóf í einu þingmáli eru alla jafnan að skerða rétt annarra þingmanna til að tala í öðrum þingmálum og taka afstöðu til þeirra.

Sem sagt: Málþófsmenn eru að svipta aðra þingmenn málfrelsi og koma í veg fyrir að þeir geti gegnt skyldum sínum sem kjörnir fulltrúar.

Málþóf er því í eðli sínu ofbeldi. Þess vegna reyna stjórnarandstöðuflokkar oftast nær að gæta þess að fara ekki yfir strikið.

Að þessu sinni mistókst stjórnarandstöðunni að finna jafnvægi í málþófinu.

Jafnvægi

Þingskapareglur eru til þess að stuðla að vandaðri málsmeðferð. Þeim er einnig ætlað að sjá til þess að eðlilegt jafnvægi sé milli stjórnar og stjórnarandstöðu á hverjum tíma.

Í þessu felst hins vegar ekki réttur minnihlutans til þess að hindra framgang mála með óeðlilegum málalengingum. Það gengur gegn eðli lýðræðisins.

Valdtemprun er mikilvægur þáttur í lýðræðinu og þingskapareglum Alþingis. Í henni felst þó ekki réttur minnihluta þingmanna til að hindra að atkvæði gangi um einstök mál ríkisstjórna eða velja hver þeirra gangi til atkvæða.

Að þessu sinni sýndu allir stjórnarandstöðuflokkarnir undir forystu formanns þingflokks Miðflokksins að þeir mundu ekki lengur hvað felst í valdtemprun.

Einangrun

Talsmenn Miðflokksins hafa réttlætt málþófið með því að sjálf stjórnarskrá lýðveldisins sé í húfi.

Aðrir þingflokkar telja að frumvarp utanríkisráðherra um að veita borgurum landsins lögvarinn rétt samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn samrýmist stjórnskipunarlögum.

Miðflokkurinn er sem sagt einangraður í afstöðu sinni að þessu leyti.

Valdtakmörkun

Þá komum við aftur að takmörkum valdsins.

Þegar ágreiningur er um hvort lög samræmast stjórnarskrá virkar lýðræðisleg takmörkun valdsins á þann veg að það er hvorki meirihluta Alþingis né minnihluta að skera úr um það. Dómstólar fara með það vald.

Þingmenn eiga að sjálfsögðu að kanna svo mikilvægt álitaefni og gera grein fyrir afstöðu sinni.

Hitt stríðir gegn þrískiptingu valdsins, sem bundið er í stjórnarskrá, þegar lítill minnihluti á Alþingi ætlar að úrskurða um ágreining af þessu tagi með því að hindra framgang mála.

Málþófið þarf líka að skoða í þessu ljósi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Björn Jón skrifar: Alvöru leiðtogi

Björn Jón skrifar: Alvöru leiðtogi
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Stefán segir Jóhanni Páli til syndanna – „Umhverfisráðherra ber sér á brjóst“

Stefán segir Jóhanni Páli til syndanna – „Umhverfisráðherra ber sér á brjóst“